Fjölritun LSH
Aðsetur Í iðjuþjálfun 31C geðdeildahúsi, 1. hæð.
Sími 543 4420
Netfang fjolritun@landspitali.is
Opið: 09:00 - 13:00 alla virka daga (lokað í júlí vegna sumarleyfa).
Starfsmenn: Margrét Vigfúsdóttir og Jón Ari Arason
Þjónusta
Fjölritun LSH veitir deildum sjúkrahússins margs konar þjónustu varðandi fjölföldun prentefnis, svo sem ljósritun, fjölritun, heftun og gormun. Ljósritun í lit og svarthvítu frá stærð A5 upp í A3, plöstun, gormun, götun og innbinding. Mikið úrval af lituðum pappír og í mismunandi þykktum.
Fjölritun er hluti af starfsemi iðjuþjálfunarinnar á geðdeild við Hringbraut og er starfsendurhæfing fyrir einstaklinga sem stefna út á almennan vinnumarkað. Hún hefur verið stökkpallur fyrir marga til að komast aftur í fyrri störf, hefja starfsferil sinn eða sem undirbúningur náms. Þrír til fjórir einstaklingar hafa tækifæri hverju sinni til að vera í þjálfun og eru þeir í vinnu frá kl. 09:00 til 12:00.
Pantanir
Tekið er á móti pöntunum í tölvupósti á netfangið: fjolritun@landspitali.is , nákvæm verklýsing þarf að fylgja með einnig er hægt að koma á staðinn og fylla út verkbeiðni. Við áskiljum okkur 3 daga afgreiðslufrest á verkefnum.
Greiðsla
Gjaldfært er fyrir þjónustu innan spítalans mánaðarlega.
Aðrir staðgreiða samkvæmt gjaldskrá.