Nytsamar upplýsingar
Almennt um deildina:
Deild R-2 er 24 rúma legudeild. Hún skiptist þannig að hluti rúmanna er sjö daga, hluti fimm daga og einnig er rekin dagdeild. Fjöldi rúma í hverjum flokki fer eftir sjúklingahópnum á hverjum tíma. Deildin sinnir frumendurhæfingu sjúklinga með heilaskaða, mænuskaða, fjöláverka, aflimun á neðri útlimum, nýja gerviliði í mjöðmum og hnjám og þeim sem þurfa endurhæfingu eftir langvarandi veikindi. Einnig sinnir deildin eftirfylgd og mati einstaklinga með skaða á heila og mænu.Einstaklingshæfð hjúkrun
Á deildinni er einstaklingshæfð hjúkrun, en það þýðir að einn hjúkrunarfræðingur og einn sjúkraliði bera ábyrgð á meðferð hvers sjúklings á deild. Þegar þeir eru ekki á vakt eru viðkomandi einstaklingar í umsjá vaktafandi starfsfólks. Upplýsingar um hver er ábyrgur hverju sinni er hægt að fá á hjúkrunarvaktinni.
Heimsóknartímar
Fastur heimsóknatími er frá kl. 16.00 en heimsóknir eru leyfðar á öðrum tímum í samráði við starfsfólk á deild. Gott er að ættingjar skipuleggi heimsóknir þannig að ekki komi of margir í einu. Einnig er æskilegt er að ættingjar taki tillit til þjálfunar- og meðferðartíma og virði mikilvægi hvíldar svo hinn sjúki hafi úthald í erfiðri þjálfun. Húsinu er lokað kl. 21.00. Ef fólk þarf að komast inn eftir þann tíma er því bent á bjöllu til vinstri við innri hurð í aðalinngangi.Sími á deild: 543 9150. Hægt að ná í hjúkrunarfólk allan sólarhringinn.
Sími fyrir sjúklinga og aðstandendur
Símasjálfsali er á fyrstu hæð. Einnig er öllum heimilt að nota eigin GSM síma svo fremi að notkun hans trufli ekki aðra.Ísskápur fyrir sjúklinga er í matsal. Öllum er heimilt að nota hann, en rétt er að minna á að henda úr honum útgengnum mat og taka eigin mat við útskrift af deild.
Örbylgjuofn er í matsal til afnota fyrir þá sem dvelja á deildinni.
Útvarp er við hvert rúm. Dvalargestum er einnig heimilt að koma með lítil ferðatæki eða geislaspilara, helst með heyrnartólum. Gott útvarpstæki með geislaspilara er í dagstofu.
Sjónvarp
Tvö sjónvörp eru í dagstofu, ætluð fyrir sína sjónvarpsrásina hvort. Einnig mega sjúklingar koma með eigið sjónvarp og hafa á stofunni í samkomulagi við stofufélaga.
Bent skal á að tölvur, símar, útvarps- og sjónvarpstæki, svo og önnur tæki, eru á ábyrgð eigenda.
Máltíðir
Þeir einstaklingar sem hafa getu til fá sér sjálfir morgunverð af hlaðborði. Á öðrum máltíðum fá þeir sérmerkta matarbakka. Starfsfólk aðstoðar eftir þörfum.
Matur handa ættingjum
Hægt er að panta mat fyrir ættingja ef þeir óska eftir að vera hjá ástvini sínum á matmálstímum. Nánari upplýsingar um verð og fyrirkomulag fást hjá deildarstjóra.
Stofa/herbergi
Gjarnan má hafa persónulega hluti eftir því sem pláss leyfir á stofu, t.d. eigið teppi eða kodda.
Í stöku tilvikum er möguleiki fyrir ástvini að gista hjá sjúklingi. Gisting er ákveðin í samráði við deildarstjóra.
Þjálfunar- og meðferðartímar
Allir sjúklingar fá eigin stundaskrá sem þeir hafa hjá sér. Auk þess er stundaskrá á töflu á gangi. Á töfluna eru skráðar allar breytingar auk þess sem þeir aðilar sem eru ekki með fasta meðferðartíma geta sett tíma sína á töfluna.
Hreinlætis- og snyrtiáhöld
Fólki er bent á að nota eigið sjampó,sápu, tannbursta, tannkrem og hárbursta. Einnig er æskilegt að fá að heiman önnur áhöld og efni, svo sem snyrtivörur, rakspíra og ilmvatn.
Fatnaður
Á deildinni klæðast allir eigin fatnaði á daginn. Gott er að hafa hann þægilegan, t.d. æfinga- eða íþróttagalla. Ætlast er til að ættingjar taki óhrein föt með sér og þvoi heima. Í stöku tilvikum þvo sjúklingarnir fötin sín sjálfir í þeim tilgangi að læra að bjarga sér sem best þegar þeir útskrifast heim. Þetta er liður í endurhæfingu og í umsjá iðjuþjálfa.
Bókasafn
Vísir er að bókasafni er í dagstofu deildarinnar. Munið að skilja eftir bækurnar við útskrift.
Reykingar
Reykingar eru bannaðar á sjúkrahúsinu með fáeinum undantekningum.
Sjálfsali
Reykjavíkurdeild Rauða krossins rekur sjálfsala á fyrstu hæð þar sem seldir eru gosdrykkir og sælgæti.
Er eitthvað sem þarfnast skýringa eða úrbóta?
Ef ættingjar eða aðrir ástvinir hafa einhverjar athugasemdir um deildina eða aðhlynningu sjúklinga eru þeir beðnir að koma athugasemdunum til deildarstjóra.
Til einstaklinga sem koma til endurhæfingar eftir ísetningu gerviliðs
Dvalartími
Reiknað er með að þeir einstaklingar dvelji í 5 daga á endurhæfingardeild, komi á mánudegi og útskrifist á föstudegi.
Lyf
Vegna þessa skamma legutíma er mikilvægt að taka mér sér lyf sem teljast óalgeng, svo og hormónalyf. Önnur lyf útvegar deildin meðan á dvöl stendur.
Hvíldarsokkar
Fólk sem kemur eftir liðskiptaaðgerð á hné þarf að hafa með sér stuðningssokka. Ástæða þess er að oft verður bólga kringum liðinn og óþægindi minnka ef notaðir eru stuðningssokkar. Hægt er að kaupa þá í apótekum.
Að lokinni endurhæfingu á Grensásdeild
Hægt er að sækja um áframhaldandi endurhæfingu á Heilsustofnun NLFÍ. Best er að sækja um pláss strax við komu á bæklunarlækningadeild.