Deild R-2

Deild R-2 er 24 rúma legudeild. Deildin sinnir frumendurhæfingu sjúklinga með heilaskaða, mænuskaða, fjöláverka, aflimun á neðri útlimum, nýja gerviliði í mjöðmum og hnjám og þeim sem þurfa endurhæfingu eftir langvarandi veikindi.

Sími á deild: 543 9150. Hægt að ná í hjúkrunarfólk allan sólarhringinn.

Deildarstjóri: Sigríður Guðmundsdóttir siggud@landspitali.is   
Yfirlæknir: Guðrún Karlsdóttir gudkarls@landspitali.is   

Heimsóknartími er frá kl. 16:00 en heimsóknir eru leyfðar á öðrum tímum í samráði við starfsfólk á deild. Gott er að ættingjar skipuleggi heimsóknir þannig að ekki komi of margir í einu. Einnig er æskilegt er að ættingjar taki tillit til þjálfunar- og meðferðartíma og virði mikilvægi hvíldar svo hinn sjúki hafi úthald í erfiðri þjálfun. Húsinu er lokað kl. 21.00.  Ef fólk þarf að komast inn eftir þann tíma er því bent á bjöllu til vinstri við innri hurð í aðalinngangi.  

Nytsamar upplýsingar fyrir sjúklinga og aðstandendur.

Kennsla hjúkrunarfræðinema

Hjúkrunarfræðinemar bæði frá Háskóla Íslands (HÍ) og Háskólanum á Akureyri (HA) koma í verknám á Grensás. Um er að ræða nema á fyrsta, öðru og þriðja ári. Einnig taka nemar á þriðja ári frá HÍ stjórnunarnám hér. Umsjónarmaður hefur skipulagt verknámið þannig að deildin hefur sameiginlega séð um nema á fyrsta og öðru ári og hefur verið mikil ánægja með það.
Sjá námslýsingu í kennsluskrá HÍ 2002-2003 www.hi.is/nam/hjukrun  og HA www.unak.is  

Legudeildir

Síðast breytt: 07.05.2010 09:42
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli