Lyflækningar
Á lyflækningasviði er veitt almenn og sérhæfð læknis- og hjúkrunarþjónusta á göngudeildum, dagdeildum og legudeildum. Starfsemin nær til gigtsjúkdóma, hjartasjúkdóma, húð- og kynsjúkdóma, innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma, lungna- og ofnæmissjúkdóma, krabbameins- og blóðsjúkdóma, meltingarsjúkdóma, nýrnasjúkdóma, smitsjúkdóma, taugasjúkdóma, öldrunarsjúkdóma og endurhæfingar.
Aðalsérgreinar lækninga á sviðinu eru almennar lyflækningar, blóðlækningar, endurhæfingarlækningar, gigtlækningar, hjartalækningar, húð- og kynsjúkdómalækningar, innkirtla- og efnaskiptalækningar, lungnalækningar, lyflækningar krabbameina, meltingarlækningar, nýrnalækningar, smitsjúkdómalækningar, taugalækningar, öldrunarlækningar.
Síðast breytt: 08.06.2009 23:14