Göngudeild

Göngudeildarhús barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL)

Staðsetning

Dalbraut 12 
Opið 8:00 til 16:00 virka daga

Símanúmer

Móttaka s. 543 4300
Bráðaþjónusta eftir lokun s. 543 4050

Starfsemin

Göngudeildin barna- og unglingageðdeildar veitir börnum og unglingum að 18 ára aldri þjónustu vegna geð- og þroskaraskana. Starfsemin einkennist af þverfaglegu samstarfi og er skipt í nokkur teymi; bráðateymi, almennt teymi, fjölskyldumeðferðarteymi, átröskunarteymi, taugateymi og vettvangsteymi. Unnið er að greiningu og meðferð ásamt fræðslu, þjálfun og ráðgjöf.

Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar, leikskólasérkennari, listmeðferðarfræðingar og ritarar.

Nánari upplýsingar er að finna í upplýsingabæklingi BUGL 




Síðast breytt: 15.01.2010 11:25
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli