Unglingageðdeild
Staðsetning
Dalbraut 12.
Símanúmer deildar: 543 4338 og 543 4320
Um deildina
Deildin er 7 daga sólarhringsdeild, ætluð unglingum 13 til 18 ára sem þurfa innlagnar við sökum geðræns vanda. Deildin hefur á að skipa níu rúmum.
Starfsfólk deildarinnar
Við deildina er teymi sem skipað er deildarstjóra, barna- og unglingageðlækni, deildarlækni, sálfræðingi, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðingi. Teymið stjórnar faglegri vinnu á deildinni og ákvarðar innlagnir og útskriftir. Annað starfsfólk eru sjúkraliðar, þroskaþjálfar, ráðgjafar sem hafa fjölbreytta menntun auk starfsmanns í eldhúsi.
Meðferð á deildinni
Á deildinni fer fram fjölskyldu,- umhverfis,- hóp- og einstaklingsmeðferð. Gerð er einstaklingsmiðuð meðferðaráætlun fyrir hvern ungling í tengslum við svokallað ,,Ábyrgðarstigskerfi”. Á meðan unglingurinn dvelur á deildinni er lögð áhersla á virka þátttöku foreldra/forráðamanna. Unglingar á skólaskyldualdri ganga ýmist í Brúarskóla við Dalbraut eða halda áfram í sínum heimaskóla á innlagnartíma.
Heimsóknar- og símatímar
Að öllu jöfnu eru heimsóknir fjölskyldu og vina leyfðar. Formlegur heimsóknartími er kl. 19:00-20:00 en foreldrar/forráðamenn geta alltaf komið í heimsókn..
Nánar um deildina í upplýsingariti Unglingadeildar BUGL (PDF)