Iðjuþjálfun Grensási

Starfsemi

Iðjuþjálfun hefur verið starfrækt á Grensási frá 1974. Á Grensási fer fram langtíma endurhæfing á tveimur legudeildum R-2 og R-3, á dagdeild og eftirfylgni eftir útskrift. Við iðjuþjálfadeildina starfa 7 iðjuþjálfar í 5,65 stöðugildum og 2 aðstoðarmenn í 1,5 stöðugildi.
Nemar í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri koma í vettvangsnám á Grensás.

Starfsemi í iðjuþjálfun er frá 8:00 til 16:00 alla virka daga.
Iðjuþjálfun er staðsett í kjallara Grensáss.
Sími iðjuþjálfunar: 543 9121
Sími á skrifstofu iðjuþjálfa: 543 9126

Þjónusta

Einstaklingar sem koma í endurhæfingu á Grensás þurfa iðjuþjálfun þegar þeir eiga í erfiðleikum við að sinna daglegri iðju sem þá langar til að gera, þurfa að gera eða er ætlast til að þeir geri á fullnægjandi hátt. Þeir geta t.d. átt í erfiðleikum með að annast sjálfan sig og sína, stunda vinnu eða nám, sjá um heimilið og stunda tómstundaiðju (áhugamál) eftir veikindi eða slys. Auk þess er aðstandendum veitt ráðgjöf og fræðsla varðandi ofangreinda þætti.

Starfsemi iðjuþjálfunar er skjólstæðings- og iðjumiðuð sem þýðir að einstaklingurinn (og jafnvel aðstandandi) í samvinnu við iðjuþjálfa skilgreinir eðli iðjuvandans, þarfir og áherslur í iðjuþjálfun. Einstaklingurinn velur sér viðfangsefni og vinnur markvisst að því ná betri færni í þeirri iðju í samvinnu við iðjuþjálfa.

Iðjuþjálfar eru virkir þátttakendur í fagteymum sem starfrækt eru á Grensási, þ.e. mænuskaðateymi, heilaskaðateymi og heilablóðfallsteymi.

Matstæki

Til að meta færni við iðju nota iðjuþjálfar aðallega eftirtalin matstæki: COPM, OSA, WRI, A-ONE, AMPS, FIM, og Barthel. Auk þess nota iðjuþjálfar áhorf þar sem þeir fylgjast með einstaklingum vinna ýmis verk. Dæmi um verk eru heimilisstörf og vinnutengd verkefni. Út frá niðurstöðum metur iðjuþjálfi bæði styrkleika og veikleika einstaklingsins.

Ökumat

Iðjuþjálfar á Grensási hafa átt gott samstarf við Guðbrand Bogason ökukennara í rúm 20 ár. Í samvinnu við hann er færni einstaklinga til að aka bifreið metin eða svo kallað ökumat er gert. Tilgangur ökumats er tvíþættur: Annars vegar þegar grunur er um að áhrif fötlunar í kjölfar slyss eða sjúkdóms/áfalls hafi áhrif á færni til að aka bifreið og hins vegar þegar þarf að finna hentug hjálpartæki sem gera viðkomandi kleift að aka bifreið (svo sem handstýring fyrir bremsu og bensín). Í ökumatinu er notaður sérstakur gátlisti.

Heimilisathugun – vinnustaða- og/eða skólaathugun

Iðjuþjálfar fara heim til einstaklinga (heimilisathuganir) til að meta færni þeirra í eigin umhverfi og meta hvort þörf er á húsnæðisbreytingum og hjálpartækjum. Einnig er farið í vinnustaða- og/eða skólaathugun því þar getur líka verið þörf á húsnæðisbreytingum, hjálpartækjum og ráðgjöf til vinnuveitenda/samstarfsmanna og kennara/starfsmanna.

Hjálpartæki

Mikilvægur þáttur í starfi iðjuþjálfa á Grensási er prófun, ráðgjöf og aðlögun á hjálpartækjum. Alla jafna er sótt um hjálpartæki til Tryggingastofnunar ríkisins (TR).

Spelkugerð

Iðjuþjálfar útbúa spelkur fyrir efri útlimi. Dæmi um slíkar spelkur eru hvíldarspelkur, spelkur til að koma í veg fyrir kreppur og spelkur til að auka færni.

Starfsmenn

Anna Jóna Guðjónsdóttir aðstoðarmaður
Edda Valtýsdóttir iðjuþjálfi, netfang: eddaval@landspitali.is  
Guðrún Árnadóttir iðjuþjálfi hefur umsjón með þróunar- og rannsóknarverkefnum, netfang: a-one@islandia.is  og gudrunar@landspitali.is  
Helga Þórarinsdóttir aðstoðarmaður, netfang: helgtor@landspitali.is  
Lillý H. Sverrisdóttir fageiningastjóri, netfang: lillyhs@landspitali.is  
Sigríður Bjarnadóttir iðjuþjálfi, netfang: sigribj@landspitali.is  
Sigrún Garðarsdóttir yfiriðjuþjálfi, netfang: sigrgard@landspitali.is  
Sigrún Ólafsdóttir iðjuþjálfi netfang: sigruno@landspitali.is  
Sigþrúður Loftsdóttir fageiningastjóri, netfang: sigthrud@landspitali.is  

Krækjur

Iðjuþjálfafélag Íslands
Háskólinn á Akureyri/Námsbraut í iðjuþjálfun

Síðast breytt: 15.04.2010 10:33
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli