Iðjuþjálfun á Landakoti
Staðsetning
Starfsemi
Á Landakoti fer fram greining og mat á heilsufari aldraðra ásamt endurhæfingu. Í húsinu eru almennar öldrunarlækningardeildir, deild fyrir einstaklinga með heilabilun, sérhæfð lungnadeild, líknardeild og dagdeild. Byltu- og beinverndarmóttaka er hluti af göngudeild og er iðjuþjálfi í teymi þar. Iðjuþjálfar sinna einnig tilfallandi verkefnum á minnismóttöku.
Nemar í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri koma í vettvangsnám á Landakot.
Starfsemi í iðjuþjálfun er frá 8:00 til 16:00 alla virka daga.
Sími á skrifstofu iðjuþjálfunar er: 543 9834
Sími á skrifstofu yfiriðjuþjálfa er: 543 9841
Þjónusta
Þjónustan felst í mati og þjálfun á daglegri iðju svo sem að klæðast, snyrta sig og borða. Einnig er unnið með þætti er lúta að heimilishaldi og tómstundum. Síðast en ekki síst er unnið að því að bæta andlega líðan og félagslega hæfni með ýmis konar hópastarfi s.s. endurminningar- og umræðuhópum.
Á öllum deildum er lögð áhersla á teymisvinnu og er iðjuþjálfi hluti af henni.
Matstæki
Heimilisathugun
Iðjuþjálfar fara heim til einstaklinga og aðlaga heimilið þörfum hvers og eins með hjálpartækjum og minni háttar húsnæðisbreytingum, s.s. endurröðun á húsgögnum og fjarlægja þröskulda. Einnig er veitt ráðgjöf varðandi notkun hjálpartækja og aðferðir til að auka öryggi.Hjálpartæki
Mikilvægur þáttur í starfi iðjuþjálfa á Landakoti er prófun, ráðgjöf og aðlögun á hjálpartækjum. Iðjuþjálfar eru í góðu samstarfi við starfsfólk Hjálpartækjamiðstöðvar Tryggingastofnunar ríkisins og seljendum hjálpartækja.Starfsmenn
Ása Lind Þorgeirsdóttir iðjuþjálfi netfang: asathor@landspitali.is Berglind Indriðadóttir iðjuþjálfi netfang: bergind@landspitali.is
Fanney M. Jónsdóttir iðjuþjálfi netfang: fanneyj@landspitali.is
Inga Guðrún Sveinsdóttir sjúkraliði, netfang: ingaguds@landspitali.is
Ingibjörg Pétursdóttir iðjuþjálfi, netfang: ingibpet@landspitali.is
Kristín Kristjánsdóttir iðjuþjálfi netfang: kristink@landspitali.is
Rósa Hauksdóttir yfiriðjuþjálfi, netfang: rosah@landspitali.is
Krækjur:
Iðjuþjálfafélag ÍslandsHáskólinn á Akureyri/Námsbraut í iðjuþjálfun
Síðast breytt: 07.06.2009 15:46