Hjúkrunarráð

Hlutverk hjúkrunarráðs er að vera faglegur ráðgefandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður Landspítala og stjórnendur hans.
Hjúkrunarráð á frumkvæði að og er vettvangur umræðna um hjúkrun, innan stofnunar og utan. Hjúkrunarráð hvetur til þess að hjúkrun á LSH sé byggð á gagnreyndri þekkingu þar sem markmiðið er að veita árangursríka hjúkrun.

Hjúkrunarráð tekur þátt í þróunarvinnu innan sjúkrahússins meðal annars með því að hvetja til klínískra rannsókna í hjúkrun og góðra tengsla við menntastofnanir í heilbrigðisfræðum.

Hjúkrunarráð er til ráðuneytis varðandi fagleg málefni hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, svo og rekstur, stjórnun, uppbyggingu og nýtingu sjúkrahússins.
Hjúkrunarráð er einnig stjórnendum heilbrigðismála utan sjúkrahússins til ráðuneytis sé eftir því leitað.

Í hjúkrunarráði eiga sæti allir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður spítalans, sem hafa starfað í þrjá mánuði og eru í föstu starfi. Allir félagar hafa tillögu- og atkvæðisrétt.

Stjórn hjúkrunarráðs Landspítala 2010 til 2011

Stjórn hjúkrunarráðs Landspítala 2010-2011. Efsta röð frá vinstri: Júlía Linda Ómarsdóttir, Elísabet Halldóra Árnadóttir, Ingibjörg Fjölnisdóttir og Hildur Magnúsdóttir. Miðröð frá vinstri: María Guðnadóttir, Valgerður Grímsdóttir, Halldóra Hálfdánardóttir, Kristín Halla Marinósdóttir og Rannveig Jóna Jónasdóttir. Neðsta röð frá vinstri: Sigríður Guðmundsdóttir, Dröfn Ágústsdóttir, Eygló Ingadóttir og Björk Inga Arnórsdóttir.

Formaður hjúkrunarráðs: Eygló Ingadóttir

Netfang hjúkrunarráðs: hjukrunarrad@landspitali.is
Aðsetur: Eiríksgata 19
Sími: 543 1415

Síðast breytt: 04.01.2011 16:07
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli