Verkefnastofa

Verkefnastofa verður sett á laggirnar til að vinna með stjórnendum að breytingum í rekstri, samkvæmt skipurit Landspítala sem tók gildi í júní 2009. Verkefnastjórnun er mikilvægt hjálpartæki við slíkar breytingar og þekking á verkefnastjórnun og eftirfylgni eru lykilþættir við framgang breytinga. Verkefnastofur hafa skilað stofnunum aukinni skilvirkni í stjórnun verkefna og aukið þekkingu á verkefnastjórnun innan fyrirtækjanna. Með gagnreyndum starfsháttum við verkefnastjórnun aukast líkur á árangri verkefna.

Verkefnastofa mun aðstoða stjórnendur við að skilgreina verkefni og koma þeim af stað og stýra stærri stefnumótandi verkefnum. Þá mun verkefnastofa hafa forgöngu um fræðslu um verkefnastjórnun, veita ráðgjöf, samræma verklag, setja upp gátlista fyrir mismunandi verkefni, setja upp hjálpartæki og halda utan um verkefnalista, sem verður aðgengilegt á heimasíðu spítalans.

Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir er verkefnastjóri

Síðast breytt: 21.01.2011 13:58
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli