Göngudeildir
11A (göngudeild þvagfæra) veitir sérhæfða göngudeildarþjónustu við sjúklinga utan sem innan spítala auk ráðgjafar og kennslu. Deildin er opin kl. 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 8:00-12:00 á föstudögum.
B3 (göngudeild HNE) sinnir greiningu, meðferð og eftirliti sjúklinga með sjúkdóma í hálsi, nefi og eyrum. Deildin er opin virka daga kl. 8:00-16:00.
Á göngudeild þvagfærarannsókna, Landspítala Hringbraut, er veitt göngudeildarþjónusta við sjúklinga bæði innan og utan spítala. Þar fara fram ýmsar rannsóknir, greiningar og meðferðir á sjúkdómum í þvagfærum auk ráðgjafar og kennslu. Á deildinni fer einnig fram nýrnasteinbrjótsmeðferð og veitt er þvaglekaráðgjöf.
Deildin er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 08:00 til 12:00, s. 543 7100.
Dag- og göngudeild augnlækninga á Eiríksgötu 37 sinnir sjúklingum með augnsjúkdóma og þeim sem þurfa eftirlit eftir aðgerðir á augum. Deildin er opin virka daga frá klukkan 8:00-16:00.