Segavarnir

Hjá segavörnum er veitt þjónusta til sjúklinga sem eru í blóðþynningarmeðferð. Hún felst í blóðtöku, mælingu og skömmtun blóðþynningarlyfja. Stjórnun blóðþynningarmeðferðar er viðamikið starf sem mæðir mest á lífeindafræðingum og hjúkrunarfræðingum.

Sjúklingar á blóðþynningu þurfa að vera í reglulegu eftirliti hjá heimilislækni eða öðrum sérfræðingi því meðferðin er ekki hættulaus.

Beiðni um segavarnir

Fræðslubæklingur um segavarnir

Staðsetning

Skrifstofur segavarna eru staðsettar á 1. hæð K-byggingar við Hringbraut.  Storkurannsóknastofur eru bæði á Hringbraut og í Fossvogi.

Á Hringbraut fer blóðsýnataka fer fram á almennri göngudeild 10E. Göngudeildin er staðsett í kjallara E-álmunnar. Einfaldast er að ganga um inngang K-byggingar, sem er glerhýsi gegnt húsi kvennasviðs.

Í Fossvogi fer blóðsýnataka fram á rannsóknarstofunni, í kjallara. Gengið er til vinstri frá vaktstöð í kjallara.

 

    Símanúmer

    Ávallt er velkomið að hringja og fá upplýsingar um töfluskammt, INR-gildi og hvenær næst skuli mæla og skammta.
    Mælst er til þess að fólk hringi sjálft eftir skammti sínum skv. eftirfarandi:

    Þeir sem hringja eftir skammti sama dag og þeir fara í blóðprufur á höfuðborgarsvæðinu geta hringt frá kl. 15:00 þann dag.
    Símanúmer segavarna er 543 5019.
    Svarað er frá kl. 13:00 - 17:00 alla virka daga.

    Starfsmenn segavarna hringja í síðasta lagi daginn eftir skömmtun til þeirra sem ekki hafa fengið upplýsingar um töfluskammt .
    Beinir símar hjá hjúkrunarfræðingum Segavarna er 543 5005, 543 5023 og 543 5028. 
    Tölvupóstfangið er segavarnir@landspitali.is

     


     

    Síðast breytt: 05.07.2010 10:48
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli