K2 öldrunarlækningardeild
Símanúmer deildarinnar er 543 9815
Deildarstjóri: Gerður Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur. Hún er við alla virka daga frá 08: til 16:00.
Læknarr deildarinnar eru: Þorkell Elí Guðmundsson, sérfræðingur í öldrunarlækningum, og Ársæll Jónsson, sérfræðingur í lyf- og öldrunarlækningum.
Heimsóknartími: Fólk er velkomið í heimsókn hvenær dags sem er,en heppilegasti tíminn er milli kl. 15:00 og 20:00
K2 er 20 rúma meðferðar- og hjúkrunar- og hvíldarinnlagnaendurhæfingardeild. sem skiptist þannig að 10 rúm eru ætluð öldruðum sem bíða eftir langtímaúrræðum á öldrunarstofnun og 10 rúm eru ætluð fyrir aldraða sem búa heima en þarfnast skammtíma eða hvíldarinnlagna.
Á deildinni er unnið samkvæmt einstaklingshæfðri hjúkrun sem þýðir að einn ákveðinn hjúkrunarfræðingur og sjúkraliði eru ábyrgir fyrir hjúkrun hvers sjúklings.
Fjölskyldufundir eru haldnir eftir þörfum.