K1 öldrunarlækningadeild
Símanúmer deildarinnar er 543 9915 eða 543 9863
Heimsóknartími: Fólk er velkomið í heimsókn hvenær dags sem er, en heppilegasti tíminn er milli kl. 15:00-20:00
Deildarstjóri er Borghildur Árnadóttir hjúkrunarfræðingur.
Hún er við störf kl. 08:00 - 16:00 alla virka daga.
Læknir: Eyjólfur Haraldsson,sérfr. í lyf og öldrunarlækningum
Öldrunarlækningadeild K1 er 20 rúma deild er skiptist í meðferðar-og endurhæfingardeild annars vegar og lungnadeild hins vegar.
Meginstarf deildarinnar er meðferð og endurhæfing aldraðra. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og /eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra. Lögð er áhersla á að fá góða yfirsýn yfir aðstæður hvers og eins og reynt er að leita úrlausna í samvinnu við þá sem í hlut eiga. Þurfi sjúklingurinn aðstoð eftir að heim er komið, s.s. heimahjúkrun eða heimilishjálp er hún skipulögð fyrir útskrift af starfsfólki deildarinnar.
Margir sjúklingar þurfa að gangast undir rannsóknir og meðferð á öðrum deildum Landspítala Fossvogi eða Hringbraut. Ferðir þangað eru á vegum deildarinnar.
Legudeildir:
- B4 bráðaöldrunarlækningadeild
- K1 öldrunarlækningadeild
- K2 öldrunarlækningardeild
- L-3-0 öldrunarlækninga- og dagdeild
- L4 heilabilunardeild
- L5 líknardeild