B4 bráðaöldrunarlækningadeild
Aðsetur
4. hæð B álma í FossvogiSímanúmer deildarinnar er 543 9400
Heimsóknartími. Opinn en besti tíminn er frá kl.15:00 til 20:00
Deildarstjóri er Sigrún Lind Egilsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Hún er við störf kl.8:00 – 16:00 alla virka daga
Sérfræðingar deildarinnar eru:
Jón Eyjólfur Jónsson yfirlæknir,
Aðalsteinn Guðmundsson, sérfr. í lyf og öldrunarlækningum
Guðlaug Þórsdóttir, sérfræðingur
Tryggvi Þ.Egilsson, sérfr. í lyf og öldrunarlækningum
auk aðstoðarlækna.
Öldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi er bráðaöldrunarlækningadeild með 25 sjúkrarúmum.
Meginstarf deildarinnar er greining og meðferð bráðra sjúkdóma. Oft er í bakgrunninn hrumleiki, færniskerðing eða öldrunarheilkenni sem ný veikindi bætast við. Einnig kunna að koma upp brestir í stuðningskerfi sem gerir hinum aldraða ókleift að dvelja heima. Sjúklingar koma flestir beint frá bráðamóttöku Landspítala. Deildin tekur einnig frá gæsludeild, öðrum bráðadeildum og öldrunardeildum á Landakoti. Margir flytjast frá B4 til framhaldsmeðferðar á öldrunarlækningadeild á Landakoti. Unnið er að útskrift allra til eigin heimilis eða á hjúkrunarheimili.
Góður árangur deildarinnar byggist á fjölfaglegu meðferðarteymi læknis, hjúkrunarfræðings, sjúkra-og iðjuþjálfa, félagsráðgjafa og annarra.
Legudeildir:
- B4 bráðaöldrunarlækningadeild
- K1 öldrunarlækningadeild
- K2 öldrunarlækningardeild
- L-3-0 öldrunarlækninga- og dagdeild
- L4 heilabilunardeild
- L5 líknardeild