L5 líknardeild

Aðsetur er í austurálmu á 5. hæð á Landakoti

Heimsóknartími er frjáls en þægilegastur kl. 15:00 - 20:00

Sími deildarinnar er 543 9877.

Deildarstjóri er Bryndís Gestsdóttir hjúkrunarfræðingur. Hún er við milli kl. 8:00 og 16:00 alla virka daga.

Sérfræðingar deildarinnar:
Ólafur H. Samúelsson, lyf- og öldrunarlæknir
og Þorkell Elí Guðmundsson sérfræðilæknir

Meginstarf deildarinnar er að veita lífslokameðferð, heildrænni og líknandi nálgun. Á líknardeildinni eru 9 sjúkrarúm.

Líknarmeðferð nær til allra þátta umönnunar sjúklings þegar lækningu verður ekki lengur við komið. Mestu skiptir að lina þjáningar vegna verkja og annarra einkenna ásamt því að sinna sálrænum, félagslegum og andlegum þörfum hins sjúka.

Markmið líknarmeðferðar er að stuðla að sem mestum lífsgæðum sjúklings og aðstandenda hans.
Líknarmeðferð miðar að varðveislu lífs, jafnframt því sem litið er á dauðann sem eðlileg þáttaskil. Markmið líknarmeðferðar er hvorki að lengja líf né flýta dauða. Skilgreining á líknarmeðferð er byggð á skilgreiningu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (Who).

Ýmsir fagaðilar koma að umönnun sjúklings, s.s. hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar og félagsráðgjafi. Allur hópurinn (teymið) hittist einu sinni í viku og fer yfir stöðu hvers sjúklings. Þannig verður meðferðin samfelldari og markvissari.

Fjölskyldufundir eru haldnir eftir þörfum. Lögð er áhersla á góð tengsl við aðstandendur og eru þeir hvattir til að ræða við lækni og/eða hjúkrunarfræðing sjúklings um meðferð og líðan.

Öll tilbreyting fyrir sjúklinga er af hinu góða, t.d. bílferðir, heimsóknir til ættingja og fleira. Helgar- og bæjarleyfi eru liður í meiri lífsgæðum og geta sjúklingar fengið þau treysti þeir sér til þess. Nauðsynlegt er að hafa samráð við hjúkrunarfræðing tímanlega um tilhögun bæjarferðarinnar.

Legudeildir

Síðast breytt: 29.06.2009 10:27
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli