Byltu- og beinverndarmóttaka

Sími er 543 9900

Deildarstjóri: Guðrún Karlsdóttir

Hlutverk
Koma í veg fyrir byltur og áverka vegna þeirra
Veita sérhæfða meðferð fyrir þá sem eru í hættu á að detta og brotna
Veita fræðslu um varnir gegn byltum og brotum
Stunda rannsóknir á áhættuþáttum, forvörnum og meðferð gegn byltum og beinbrotum

Þeir sem eiga pantaðan tíma á byltu- og beinverndarmóttöku
-eru í áhættu að detta og brotna
-er vísað af slysa- og bráðadeild og bráðamóttöku eftir byltu eða brot
-er vísað af heimilislækni eða öðrum sérfræðingum vegna óstöðugleika og dettni

Upplýsingar sem óskað er eftir:
Nafn heimilislæknis eða heilsugæslustöðvar
Lyfjalisti
Ef sjúklingur er í þjálfun, nafn þjálfara og hvar þjálfun fer fram

Hvernig er heimsóknin á byltu- og beinverndarmóttöku?

  • Sjúklingur kemur á dagdeild í fyrstu komu og dvelur þar hálfan dag
  • Sjúklingur verður sóttur og honum ekið heim fyrsta daginn
  • Matur í hádegi og kaffi
  • Mat hjúkrunarfræðings
  • Minnispróf, andleg líðan, félagsleg staða og næringarástand
  • Mat læknis
  • Saga og skoðun með tilliti til sjúkdóma sem geta stuðlað að byltum og beinbrotum
  • Mat sjúkraþjálfara
  • Nákvæmt mat á hreyfifærni, styrk og jafnvægi
  • Mat iðjuþjálfara
  • Heimilisathugun

Eftirlit:

  • Teymi fer yfir niðurstöður og leggur fram meðferðaráætlun
  • Endurkoma hjá lækni og hjúkrunarfræðingi
  • Farið yfir sjúkdómsgreiningar og meðferðaráætlun rædd
  • Fræðsla um byltu og beinvernd (kalk og D-vítamín inntöku, skeljabuxur og gildi hreyfingar)
  • Meðferð hjá sjúkraþjálfurum á göngudeild, á dagdeild eða á legudeildum eftir því sem við á. Einstaka fá meðferð hjá þjálfurum annars staðar
  • Þremur mánuðum eftir að meðferð lýkur kemur sjúklingur í endurmat til sjúkraþjálfara og árangur meðferðar er metinn

Göngudeildir:

Síðast breytt: 08.06.2009 17:35
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli