Minnismóttaka
Aðsetur: Jarðhæð - kjallara Landakots. Þar er hægt að fá upplýsingar um tímapantanir hjá læknum og símaviðtal við hjúkrunarfræðing.
Afgreiðslan er opin alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00
Sími á göngudeild er 543 9900
Deildarstjóri er Guðrún Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur
Yfirlæknir er Jón Snædal, sérfræðingur í lyf- og öldrunarlækningum
Heimsóknir
Nauðsynlegt er að aðstandandi komi með til að gefa upplýsingar og segja sína hlið á vandamálinu. Viðtal sjúklings og aðstandanda við lækni. Farið er yfir heilsufar, sjúkra og ættarsögu. Lögð eru fyrir einföld vitræn próf og gerð almenn læknisskoðun og skoðun taugakerfis. Æskilegt er að aðstandandi sé viðstaddur.
Aðstandandi fær viðtal við félagsráðgjafa.
Frekari rannsóknir og endurkoma ákvarðaðar í framhaldinu.
Hlutverk og starfsaðferðir
- Greina sjúkdóma eða ástand sem valdið hefur vitrænni skerðingu.
- Veita sérhæfða meðferð og fylgja henni eftir svo lengi sem þörf er á.
- Veita leiðbeiningar um félagslega aðstoð.
- Styðja sjúklinginn og aðstandendur við að aðlagast breytingum sem sjúkdómurinn hefur í för með sér svo viðhaldið sé sem bestum lífsgæðum.
- Veita leiðbeiningar um hjúkrun og hafa milligöngu um að hún sé veitt.
- Veita fræðslu til sjúklinga og aðstandendur
Auka þekkingu starfsfólks um þá sjúkdóma sem valda vitrænni skerðingu og afleiðingar þeirra. - Stunda rannsóknir
- Hafa samstarf við sambærilega þjónustuaðila utan lands sem innan.
Þeir sem panta tíma á göngudeild minnismóttöku
Að jafnaði sendir heimilislæknir skriflega beiðni. Einnig ger það aðrir læknar, heimahjúkrun, vistunarmatshópar félagsmálastofnana sveitafélaga og öldrunarteymi sjúkrahússins.
Algengustu ástæður
Minnistap, skert ratvísi, verkstol, málstol og önnur einkenni vitrænnnar skerðingar. Einnig geðrænar afleiðingar svo ranghugmyndir, þunglyndi, kvíði, dægurvilla o.fl.
Upplýsingar sem óskað er eftir í beiðni
Nafn, kennitala, heimili, sími, hjúskaparstaða, nafn maka. Nafn og símanúmer aðstandanda sem kemur með í skoðunina. Heimilislæknir. Ástæða fyrir komu á minnismóttöku. Helstu sjúkdómar og meðferð þeirra.
Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Göngudeildir: