Legudeildir

Á öldrunarlækningadeildirnar koma sjúklingar sem eiga við aldurstengdan heilsufarsvanda að stríða ásamt færnitapi og félagslegum vanda. Ennfremur koma sjúklingar til mats og endurhæfingar, eftir að bráðavanda hefur verið bægt frá á öðrum deildum LSH en aðrir koma úr heimahúsi til rannsókna og endurhæfingar.

Miðstöð almennra öldrunarlækninga er á Landakoti. Þar leggjast inn sjúklingar til mats og endurhæfingar sem ekki krefst úrræða á hátæknisjúkrahúsi. Markmið deildanna er að veita öldruðum, sem þjást af margs konar langvinnum sjúkdómum, greiningu, meðferð og endurhæfingu.

 

 

Síðast breytt: 29.06.2009 10:04
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli