Blóðlækningar

Skrifstofa blóðlækninga er á 20A við Hringbraut
Sími 543 6860
Skrifstofustjóri er Halldóra F. Sigurgeirsdóttir
Yfirlæknir er Hlíf Steingrímsdóttir

Á LSH er blóðfræði (Hematology) skipt í blóðmeinafræði (labarotory hematology og blæðaramiðstöð) og blóðlækningar (clinical hematology).
Starfsemi blóðlækninga er að mestu á Landspítala Hringbraut og heyrir undir lyflækningasvið.

Innan blóðlækninga er sjúklingum sinnt með illkynja og góðkynja blóðsjúkdóma. Stór hluti þeirra sjúklinga sem liggja inni á blóðlækningadeild eru með illkynja blóðsjúkdóma s.s. hvítblæði, eitlakrabbamein eða mergæxli og þurfa á flókinni lyfjameðferð að halda. Þar liggja einnig sjúklingar sem hafa verulega skert varnarkerfi vegna sjúkdóms í merg eða lyfjagjafar og eru því í verulegri sýkingarhættu. Sjúklingum sem eru ekki inniliggjandi á sjúkrahúsinu er sinnt á dag og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga og geta margir fengið lyfjameðferð og blóðhlutagjafir þar án þess að leggjast inn á sjúkrahúsið. Hver sérfræðingur sinnir eftirliti og meðferð sinna sjúklinga samkvæmt skipulagi á dag og göngudeild einu sinni í viku og oftar ef þörf krefur. Stór hluti af starfsemi blóðlækninga er fólgin í ráðgjöf til annarra heilbrigðistarfsmanna og sérfræðinga spítalans og einnig við heilbrigðisstarfsfólk utan LSH.

Í ársbyrjun 2003 var tekin upp háskammtameðferð með eigin stofnfrumuígræðslu hér á landi og var það mikil lyftistöng fyrir meðferð sjúklinga með illkynja blóðsjúkdóma. Þessi meðferð er samstarfsverkefni blóðlækninga og Blóðbankans.

Sérfræðingar í blóðlækningum sinna einnig kennslu og vísindastarfsemi innan greinarinnar.

Fyrir utan hefðbundinn dagvinnutíma er sérfræðingur í blóðlækningum á bakvakt. Nánari upplýsingar um bakvaktina fást í gegnum skiptiborð LSH, s. 543 1000.

Blóðlækningadeild er staðsett á 11G við Hringbraut og er með 14 legurými. Þar er inniliggjandi sjúklingum með blóðsjúkdóma sinnt. Starfsemi blóðlækninga er einnig á dag- og göngudeild blóð og krabbameinslækninga sem er staðsett á 11B og C við Hringbraut.

Sérfræðingar í blóðlækningum:
Brynjar Viðarsson
Guðmundur Rúnarsson
Hlíf Steingrímsdóttir
Sigrún Reydal

Síðast breytt: 20.04.2011 10:08
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli