Framkvæmdastjóri lækninga
Framkvæmdastjóri lækninga heyrir beint undir forstjóra og bera ábyrgð gagnvart honum. Forstjóri er næsti yfirmaður hans. Framkvæmdastjóri lækninga situr í framkvæmdastjórn. Hann ber ábyrgð á að móta sýn og markmið faglegra málefna er varða meðferð sjúklinga og faglega þróun heilbrigðisstarfsmanna.
Framkvæmdastjóri lækninga ber í þessum tilteknu faglegu málefnum ábyrgð á starfi lækninga á LSH. Hann styður sérstaklega við faglega þróun og starfsþróun lækna og læknaritara en ber einnig að efla faglega þróun allra annarra heilbrigðisstétta í samvinnu við aðra framkvæmdastjóra.
Nánar um hlutverk framkvæmdastjóra lækninga
í skýringum með skipuriti Landspítala
Síðast breytt: 10.06.2009 14:49