|
Litningarannsóknir eru gerðar að beiðni lækna. Litningarannsóknadeild leggur þeim til sérstök eyðublöð til að biðja um litningarannsókn.
Panta má þessi eyðublöð í síma 543-8062.
Beiðnaeyðublöð litningarannsóknadeildar eru af tveimur gerðum: Litningarannsókn, blóð, beinmergur, húð, annað eyðublaðið í pdf skjali Starfsfólk á litningarannsóknadeild (543 8062) sendir beiðnirnar samkvæmt ósk.
Litningarannsókn, legvatn, fylgivefur eyðublaðið í pdf skjali Starfsfólk á litningarannsóknadeild (543 8062) sendir beiðnirnar samkvæmt ósk.
Erfðarannsóknir (DNA-rannsóknir) eyðublaðið í pdf skjali
Mikilvægt er að vandað sé til útfyllingar rannsóknarbeiðna og að allar umbeðnar upplýsingar séu veittar. Þær eru notaðar við mat og túlkun á niðurstöðum og geta einnig komið að gagni ef gera þarf viðbótarrannsóknir. |