Ábendingar
Litningarannsóknir eru gerðar þegar grunur er um litningagalla, en segja má að ábendingar (indications) litningarannsókna falli í þrjá meginflokka:
1. Forburðargreining eða greining litningagalla á fósturskeiði.
2. Leit að litningagalla hjá einstaklingum með tiltekna meðfædda sjúkdóma (heilkenni).
3. Rannsókn hjá einstaklingum með hvítblæði og tiltekin krabbamein.
Litningarannsókn er oft gerð við rannsókn á endurteknum fósturlátum, við fósturdauða, þegar fósturgalli finnst, þegar verðandi foreldrar eru sjálfir með litningagalla og í tengslum við rannsókn á ófrjósemi.
Síðast breytt: 11.03.2011 09:23