Litningarannsóknir
|
Hlutverk litningarannsóknadeildar ESD er að annast alla almenna þjónustu við lækna og sjúkrastofnanir á landinu öllu vegna litningarannsókna á mönnum. Ábendingar til litningarannsókna eru margvíslegar, en megináhersla hefur verið lögð á fósturgreiningu, þ.e. á greiningu alvarlegra litningagalla hjá fóstri snemma á meðgöngutíma, en til þess eru notuð legvatns- eða fylgjuvefssýni. Litningarannsóknir má einnig gera á blóði, húð, beinmerg og fleiri lifandi vefjum. Litningarannsókn á blóði barna er einkum gerð þegar verið er að kanna orsakir vanskapnaðar eða vangefni, en einnig þegar kynþroski er síðbúinn eða líkamsvöxtur óeðlilega hægur. |
Litningarannsóknadeild getur einnig séð um að senda sýni erlendis: lifandi frumur eða kjarnasýru (DNA) til sérstakra erfða- eða efnaskiptarannsókna samkvæmt sérstöku samkomulagi.