Kennsla

Erfða- og sameindalæknisfræðideild er vettvangur kennslu og vísindarannsókna og hefur starfstengsl við lífefna- sameindalíffræðasviði læknadeildar H.Í með samstarfsamningi Landspítala og Háskóla Íslands. 

Námskeið sem kennd eru á lífefna- og sameindalíffræðisviði eru lífefnafræði, sameindalíffræði, meinefnafræði og erfðalæknisfræði

Auk þess taka kennarar sviðsins þátt í kennslu vandamiðaðrar verkefna á 2. ári læknanáms.

Starfsmenn deildarinnar taka einnig þátt í kennslu í öðrum deildum Háskóla Íslands og öðrum háskólum. 

Kennarar deildarinnar hafa kennt í verkefnatengdu námi, bæði í grunnnámi læknadeildar og í meistara- og doktorsnámi.

Jón Jóhannes Jónsson, dósent í meinefnafræði og forstöðumaður lífefna-, meinefna- og erfðalæknisfræðasviðs læknadeildar Háskóla Íslands og stundakennari í erfðafræði við hjúkrunarfræðideild, ljósmóðurfræði.

Ástrós Arnardóttir, stundakennari í mannerfðafræði og frumuerfðafræði við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla  Íslands.

Jóhann Heiðar Jóhannsson, stundakennari við læknadeild Háskóla Íslands, lífeindafræði, og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, ljósmóðurfræði.

Leifur Franzson, stundakennari við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og læknadeild Háskóla Íslands, geisla- og lífeindafræðiskor.

Margrét Steinarsdóttir, stundakennari í frumuerfðafræði við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands

Reynir Arngrímsson, dósent í klínískri erfðafræði við Læknadeild H.Í.  Umsjónarkennari námskeiðs í erfðalæknisfræði.

Sigurborg E. Billich, stundakennari í erfðafræði við læknadeild Háskóla Íslands, geisla- og lífeindafræðiskor.

Valdís Finnsdóttir, stundakennari í verklegri vefjafræði við líf- og umhverfisvísindadeild H.Í.

Vigdís Stefánsdóttir, erfðaráðgjafi, stundakennari við læknadeild Háskóla Íslands og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, ljósmóðurfræði.

Síðast breytt: 11.03.2011 09:19
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli