Vísindastarfsemi

Erfða- og sameindalæknisfræðideild er vettvangur kennslu og vísindarannsókna og hefur starfstengsl við lífefna- sameindalíffræðasviði læknadeildar H.Í með samstarfsamningi Landspítala og Háskóla Íslands. Samstarfið nær til starfsfólks, húsnæðis, rannsókna og kennslu.

Megin áherslur í rannsóknum eru á sviði sameindaerfðafræði, líffræði erfðamengis mannsins, meðfæddir og áunnir litningagallar og á sviði erfðaráðgjafar.

Meðal núverandi verkefna má nefna, sameindaerfðafræði eingena sjúkdóma þ.m.t. járnofhleðslu (hemókrómatósi). Bygging og eiginleikar erfðaefnis og nýting þeirrar þekkingar við þróun aðferða til að greina flókin kjarnsýrusýni. Genalækningar – þróun genaferju byggðri á mæði-visnuveiru. Lífefnafræði beinþynningar. Þróun örflögutækni til sjúkdómsgreiningar á krabbameinsvef og á litningagöllum. Meðfæddir litningagallar og áunnar litningabrenglanir í æxlum.

Auk fastra starfsmanna deildarinnar vinna nemar í grunnnámi og framhaldsnámi s.s. meistara- og doktorsnámi að rannsóknarverkefnum. 
Í meðfylgjandi ársskýrslum (2008, 2007, 2006, 2005) má sjá nánara yfirlit um vísindastarfsemi deildarinnar. Auk þess má finna upplýsingar í ársskýrslum Háskóla Íslands.

Síðast breytt: 11.03.2011 09:16
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli