Þjónusta
|
Erfða- og sameindalæknisfræðideild (ESD) veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu fyrir allt Ísland. Deildin skiptist upp í eftirfarandi starfssvið: Litningarannsóknir, lífefnaerfðarannsóknir þ.m.t. nýburaskimun og fósturskimun, sameindaerfðarannsóknir, klíníska erfðafræði - erfðaráðgjöf og lífupplýsingatækni. ESD tengist lífefna-sameindalíffræðasviði læknadeildar H.Í. Auk erfðaþjónustu er ESD vettvangur kennslu og vísindarannsókna. Deildin er ein sinnar tegundar á Íslandi og sinnir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu fyrir allt landið. Starf ESD tekur mið af ráðleggingum alþjóðlegra aðila, s.s. WHO, European Society of Human Genetics, EuroGentest og American College of Medical Genetics. |
|
Síðast breytt: 08.06.2009 21:41