Fræðsla og vísindi

Helstu áherslur í rannsóknum

Markmiðið er að leggja áherslu á fá stór verkefni sem nýta sér sérstöðu Íslands, en það býður upp á einstaka möguleika til rannsókna á faraldsfræði og sameindafaraldsfræði sýkinga.

Markvisst hefur verið unnið að því að bæta aðstöðu deildarinnar til stofnagreininga. Fram að þessu hafa rannsóknirnar einkum beinst að sameindafaraldsfræði sýklalyfjaónæmis, pneumókokkasýkinga, streptókokkasýkinga, Campylobacter og Chlamydia trachomatis. Deildin er í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu að kanna hvort næmi fyrir tilteknum sýkingum geti verið arfbundið.

 

Fræðslustarfsemi

Starfsfólk deildarinnar tekur þátt í kennslu og þjálfun háskólanema í grunn- og framhaldsnámi, þjálfun starfsmanna og stjórnenda á deildinni sem og símenntunarstarfi fyrir ýmsar starfsstéttir.
Deildin tekur þátt í viðeigandi verkefnum á Landspítala sem stýrt er af öðrum deildum.

Síðast breytt: 01.06.2009 18:10
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli