Þjónusta
Klínísk starfsemi
Framkvæmd rannsókna á sviði bakteríufræði, sveppafræði og sníkjudýrafræði með þeirri aðferðafræði sem skráð er hér fyrir neðan og listaðar nákvæmar í efnisyfirliti þjónustuhandbókar.
- Ræktun á æti, greiningar og næmispróf.
- Smásjárskoðun, s.s. Gramslitun, sýruföst litun, flúrlitun, bein smásjárkoðun og Giemsalitun
- Leit að mótefnavökum sýkla
- Leit að mótefnum gegn sýklum
- Leit að erfðaefni örvera
- Stofnagreiningar örvera
Þjónusturannsóknir
Að jafnaði eru öll sýni sem berast fyrir kl. 18 virka daga og fyrir kl. 13:00 um helgar skráð og sett í vinnslu. Utan þessa vinnutíma er lífeindafræðingur á gæsluvakt og kemur hann í húsið a.m.k. einu sinni fyrir miðnætti og við útköll. Ákveðin sýni (sjá töflu) eru unnin á vöktum þegar lífeindafræðingur er í húsinu. Önnur sýni eru einungis unnin á vöktum í kjölfar sérstaks útkalls, annars að morgni næsta dags.
Ráðgjafarþjónusta
Ráðgjafarþjónusta sýklafræðideildar er opin frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga í síma 543 5650, 5435661 og 5435662.
Ef ekki er svarað í framangreindum númerum utan dagvinnutíma er farsími lífeindafræðings á vakt 824 5208.
Sérfræðilæknir er á vakt allan sólarhringinn og er farsími hans: 824 5247
Lífeindafræðingar og læknar veita upplýsingar og ráðgjöf skv. verklagsreglu.
Haldnir eru reglulegir fundir með starfsfólki klínískra deilda um notkun þjónustu deildarinnar og til að ræða vísindaleg málefni. Starfsfólk deildarinnar tekur þátt í sjúkratilfellafundum, og veitir ráðgjöf um almenna virkni sem og einstök tilfelli.
Kennsla
Starfsfólk deildarinnar sinnir kennslu heilbrigðisstétta í samstarfi við Háskóla Íslands. Helstu þættir eru:
- Kennsla í sýklafræði fyrir nema á háskólastigi (s.s. læknisfræði, lífeindafræði, hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfun, lyfjafræði).
- Þjálfun útskrifaðra og nema í framhaldsnámi.
- Þjálfun starfsmanna við rannsóknir og stjórnun.
- Símenntun.
Vísindarannsóknir
Á deildinni fara fram vísindarannsóknir í samstarfi við innlenda og erlenda háskóla og ýmsar vísinda- og heilbrigðisstofnanir íslenskar sem erlendar. Lista yfir vísindarannsóknir má finna á heimasíðu deildarinnar.
Ætagerð
Ætagerð framleiðir æti til sýklarannsókna á deildinni og selur æti til annarra rannsóknastofa á landinu. Ætagerð vinnur að innleiðingu á ISO9001 vottuðu gæðakerfi.