Kynningarmál
Upplýsingafulltrúi hefur það meginhlutverk að annast miðlun upplýsinga og kynningarmál sem varða starfsemi Landspítala. Um er að ræða upplýsingamiðlun innan sjúkrahússins og til almennings með útgáfu efnis í prentuðu eða rafrænu formi. Auk þess hefur hann samstarf við fjölmiðla sem fjalla um málefni sjúkrahússins.
Upplýsingafulltrúi er ritstjóri upplýsingavefs Landspítala, heimavefs og útvefs, sér um útgáfu á ársskýrslu Landspítala og stendur með einum eða öðrum hætti að útgáfu á margvíslegu öðru efni til kynningar á starfsemi háskólasjúkrahússins.
Jón Baldvin Halldórsson er upplýsingafulltrúi Landspítala og deildarstjóri kynningarmála.
s. 543 1122, netfang jonbh@landspitali.is
Aðsetur á skrifstofu forstjóra á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5.
Starfsmenn (Þorfinnsgata 14, 4. hæð):
Árni Collett, grafískur hönnuður arnic@landspitali.is
Brynhildur Pétursdóttir vefstjóri brynhp@landspitali.is