Fagráð
Fagráð er ráðgefandi aðili fyrir stjórnendur á endurhæfingarsviði Landspítala - háskólasjúkrahúss. Markmið ráðsins er að fylgjast með faglegri starfsemi á sviðinu og koma með ábendingar um þætti sem betur megi fara. Ráðið á að stuðla að þróun og framförum í þeirri starfsemi sem fram fer á sviðinu, bæði að því er varðar þjónustu við sjúklinga, menntun nemenda, endurmenntun starfsfólks og vísindarannsóknir.
Stjórnendur sviðsins geta vísað málum til ráðsins en ráðið getur einnig tekið upp einstök málefni að eigin frumkvæði og sett fram tillögur til endurbóta.
Í fagráðinu eiga sæti 9 starfsmenn sem eru kosnir til tveggja ára í senn. Einn fulltrúi situr fyrir hvern faghóp háskólamenntaðra starfsmanna sem starfar á sviðinu og eiga í ráðinu sæti fulltrúar eftirtalinna faghópa; félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa, lækna, presta, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, talmeinafræðinga og þroskaþjálfa. Sviðsstjórn og forstöðumenn einstakra rekstrarþátta sitja alla jafna ekki í ráðinu.
Fagráð fundar minnst einu sinni í mánuði og oftar ef ástæða er til. Á meðal verkefna ráðsins um þessar mundir er vefsíðugerð fyrir sviðið, fræðslumál/símenntun starfsmanna og einnig er verið að vinna að því að kynna sér notkun gæðastaðla sem notaðir eru á sviði endurhæfingar erlendis.

Síðast breytt: 22.05.2009 11:55