Sjúklingahópar
Starfsemi endurhæfingarsviðs er dreifð um spítalann og koma starfsmenn þess að meðferð og endurhæfingu flestra sjúklingahópa.
Á endurhæfingardeild LSH að Grensási koma einstaklingar sem oft á tíðum þurfa á lengri endurhæfingu að halda. Þar fer einkum fram endurhæfing eftir heilablóðfall, heilaskaða, mænuskaða, fjöláverka, langvinn veikindi, aflimun á ganglim og liðskiptaaðgerð á hné eða mjöðm. Þá er boðið upp á eftirlit eftir heila- og mænuskaða.
Heilaskaðar eftirfylgd
Einstaklingar sem hlotið hafa heilaskaða er boðin eftirfylgd þegar liðið er eitt ár frá áfalli. Reiknað er með tveggja til þriggja daga endurmatsferli þar sem viðkomandi einstaklingur hittir það fagfólk sem hann var í meðferð hjá, lækni, hjúkrunarfræðing, taugasálfræðing, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa og e.t.v. talmeinafræðing. Einnig eru gerðar þær rannsóknir sem talin er þörf á, t.d. sneiðmynd eða segulómun af höfði. Tækifærið er oft notað til að endurmeta ökuhæfni, ef einstaklingnum hefur verið ráðlagt að bíða með akstur. Í lok þessa tímabils er útskriftarfundur með viðkomandi, fjölskyldu hans og fagfólki, farið yfir niðurstöður og veittar ráðleggingar m.t.t. framtíðar.
Mænuskaðar - eftirfylgd
Allir sem fá mænuskaða eftir slys á Íslandi og þurfa endurhæfingu, fá þjónustu á Landspítala Grensási. Árin 1996-7 voru gerðar þrjár rannsóknir á mænusköðuðum einstaklingum eftir slys á Íslandi. 1) Rannsóknirnar sýndu að þörf var fyrir eftirfylgd mænuskaðaðra á Íslandi.
Eftirfylgd mænuskaðaðra hófst á Grensási 1999. Atriðaskrá verkefnisins er þýdd úr "Quality Indicators in Spinal Cord Injury Care: A Swedish Collabroative Project". 2) Þessi spurningarlisti (Nordic SCI Registry, útgáfa 3.4) er notaður á sex sænskum og þremur norskum mænuskaðadeildum innan vébanda Nordic SCI Concil (NSCIC). Eftirlitið tekur nú tvo daga og fer einstaklingurinn í þvagfærarannsókn og blóðrannsókn og hittir þvagfæraskurðlækni, endurhæfingarlækni, hjúkrunarfræðing, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa. Meðferðateymið og einstaklingurinn fara síðan yfir það sem fram hefur komið og hvaða úrræða sé þörf.
Sjúkraþjálfarar hafa veitt þjónustu á göngudeild í fjölda ára. Haustið 2002 var göngudeildarstarfsemi aukinn í tengslum við eftirlitið og opnaðist þar með aukið aðgengi mænuskaðaðra einstaklinga að faglegri ráðgjöf.
Markmið eftirlitsins er að auka þekkingu mænuskaðaðra einstaklinga á eigin ástandi, koma í veg fyrir fylgikvilla og bæta heilsufar og lífsgæði mænuskaðaðra einstaklinga.
1) Sigrún Knútsdóttir, Íris J. Svavarsdóttir, Margrét Sigurðardóttir og Sigrún Garðarsdóttir, 1999; Óskar Ragnarsson og Guðmundur Geirsson, 1998; Marta Kjartansdóttir, 1997.
2) Richard Levi, Per Ertzgaard og The Swedish Spinal Cord Injury Council 1998, útgáfa 3.3
Áhugaverðar vefsíður:
Samtök endurhæfðra mænuskaðaðra í Bandaríkjunum American Spinal Injury Association http://www.asia-spinalinjury.org Og http://www.pva.org
Samtök endurhæfðra mænuskaðaðra í Kanada http://www.canparaplegic.org
Danmörk: http://www.dhf-net.dk
Samtök lækna sem vinna við mænuskaða. International Spinal Cord Society http://www.iscos.org.uk
Samtök fagfólks sem vinnur við mænuskaða á norðurlöngum. Nordic SCI Concil (NSCIC) http://www.haukeland.no/nscic
Rick Hansen Institute: http://www.rickhansen.ubc.ca
Vancouver Spine Program: http://www.vanspine.bc.ca
http://www.ppt.on.ca
ICORD http://www.icord.org/
Rannsóknir tengdar mænuskaða http://cord.ubc.ca
Neil Squire Foundation: EDUCATION, TECHNOLOGY AND CAREER DEVELOPMENT FOR PEOPLE WITH PHYSICAL DISABILITIES
http://www.neilsquire.ca
6th World Conference Injury Prefention & Control http://www.trauma2002.com