Sundlaug Grensási
Við Grensás er sérhönnuð æfingasundlaug, 17metra löng, 10 metra breið og er hitastig um 33°C. Tveir heitir pottar með vatnsnuddi eru við laugina. Laugin er notuð bæði fyrir einstaklings- og hópmeðferðir. Göngudeildarþjónusta er starfrækt við sundlaugina og þarf tilvísun frá lækni.
Einnig er laugin leigð út til félagasamtaka og einstaklinga. Almennt er opið frá 8:00 til 16:00 Nánari upplýsingar í síma 543 9319.
Síðast breytt: 20.05.2009 11:25