Teymisvinna fagstétta

Teymisvinna er mikilvægur þáttur í endurhæfingarstarfi. Í meðferðarteymum starfa að jafnaði læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar og félagsráðgjafar. Að endurhæfingu koma einnig, eftir þörfum hverju sinni, næringarfræðingar, prestar, sálfræðingar, talmeinafræðingar og þroskaþjálfar.

Starfsmenn sviðsins taka reglulegan þátt í starfsemi meðferðarteyma á deildum LSH, má þar nefna brunateymi, líffæraígræðsluteymi, öldrunarteymi, MND teymi, o.fl.




Miðstöð endurhæfingar á LSH er á Grensási. Þar starfa þrjú meðferðarteymi, heila- og mænuskaðateymi, heilablóðfallsteymi og stoðkerfisteymi sem annast einstaklinga sem koma í endurhæfingu vegna fjöláverka, hafa misst útlimi, fengið gervilið eða þarfnast endurhæfingar eftir þung veikindi. Sjúklingar sem lenda í alvarlegum áföllum hitta teymið, ásamt aðstandendum sínum, að jafnaði á 4-6 vikna fresti. Auk þess hefur fjölskyldan greiðan aðgang að öllum fagstéttum utan teymisfunda.

Á Grensási starfa auk meðferðarteyma þrjú fagteymi; mænuskaðateymi, heilaskaðateymi og heilablóðfallsteymi. Þessi teymi vinna að ýmsum málefnum tengdum sjúklingum, t.d. nýjungum í meðferð, rannsóknum, gerð fræðsluefnis o.fl.
Síðast breytt: 20.05.2009 11:18
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli