Talþjálfun

 

Talmeinafræðingar sjá annars vegar um greiningu og meðferð kyngingartregðu og hins vegar greiningu og meðferð tal- og málmeina.

Talmeinafræðingar meta mál og tal með sérstökum prófum og gefa ráð um tjáskipti og lengri tíma meðferð. Þeir aðstoða sjúklinga við að ná sem bestri færni til tjáskipta, gjarnan í góðri samvinnu við aðstandendur. 

Sumir eiga erfitt með að kyngja fæðu og meta talmeinafræðingar slík vandamál, sem kallast kyngingartregða. Oft ráðleggja talmeinafræðingar breytingar á mat og drykk, t.d. að þykkja drykki og mauka mat. Í sumum tilvikum getur verið mælt með sérstakri kyngingarþjálfun eða finna aðrar leiðir til að nærast.

Hjá talmeinaþjónustunni starfa fjórir talmeinafræðingar.  Þeir veita þjónustu á legudeild, dagdeild og göngudeild á Landspítala Grensási og á öðrum deildum spítalans eftir því sem við verður komið.

Talmeinafræðingar sitja í þverfaglegum teymum á sjúkrahúsinu, auk þess sem þeir taka á móti talmeinafræðinemum og nemum annarra fagstétta í starfsnámi á endurhæfingardeildinni á Grensási.


 

Síðast breytt: 23.05.2011 09:15
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli