Kynbundnar erfðir
Eins og lýst var í grunnupplýsingum um erfðir, eru litningarnir 46 í flestum frumum líkamans. Í kynfrumunum eru þó aðeins 23 litningar, annar litningurinn úr hverju pari A-litninganna og svo einn kynlitningur. Í sæðisfrumum er kynlitningurinn annað hvort X eða Y en í eggfrumum er alltaf X.
Móðir gefur alltaf X litning til barna sinna en faðir gefur ýmist X eða Y litning. Þannig ræður kynlitningurinn í sæðisfrumunni kyni barnsins.
Á X-litningnum eru, eins og á A-litningum, gen sem eru í tveimur eintökum hjá konum en aðeins einu eintaki hjá körlum af því þeir hafa bara einn X-litning.
Kona sem er arfberi og hefur eitt breytt gen á öðrum af X-litningum sínum getur því gefið barni sínu annað hvort breytt eða óbreytt gen. Sé barnið drengur sem erfir breytta genið, hefur hann ekkert óbreytt eintak til að bæta upp fyrir breytta genið og fær sjúkdóminn sem tengist geninu. Sé barnið stúlka sem erfir breytta genið, fær hún annan X-litning frá föður sínum. Sá X-litningur er með óbreytt gen og stúlkan verður arfberi, oft án einkenna eða með lítil einkenni.