Ástæður fyrir erfðaráðgjöf
Nokkrar ástæður geta verið fyrir því að einstaklingar vilja fara í eða er vísað í erfðaráðgjöf. Hér að neðan eru nokkrar þeirra taldar:
- Læknir telur að erfðasjúkdómur sé til staðar hjá fjölskyldumeðlim og vill staðfesta sjúkdómsgreiningu.
- Ráðþegi vill vita hvort hann sé í aukinni áhættu á því að fá ákveðinn erfðasjúkdóm einhvern tíma á lífsleiðinni.
- Annað hjóna er með erfðasjúkdóm.
- Fósturskimun gefur til kynna líkur á erfðasjúkdómi.
- Fósturlát hefur orðið þrisvar sinnum eða oftar.
- Barn hefur fæðst andvana.
- Ákveðnar tegundir krabbameina hafa greinst hjá einstaklingi eða nánum ættingjum.
- Annað foreldra eða barn hefur þroskavandamál, er með námsörðugleika eða heilbrigðisvandamál.
Síðast breytt: 02.04.2009 17:00