Bréf til ráðþega

Eftir að erfðaráðgjöf vegna krabbameina er lokið, fær ráðþegi bréf með samantekt úr erfðaráðgjöfinni og upplýsingum um erfðir krabbameinsins. Allir sem fara í erfðarannsókn fá skriflega staðfestingu á greiningunni, hvort sem hún er að viðkomandi beri breytta genið eða ekki.

Ef sá sem sem farið hefur í erfðarannsókn reynist vera arfberi fyrir t..d. BRCA1 eða BRCA2 breytingu í geni fær hann bréf sem hægt er að fjölfalda og senda ættingjum til upplýsingar.

Í bréfunum eru upplýsingar um það hvernig hægt er að ná sambandi við erfðaráðgjöfina og panta tíma.

 

Síðast breytt: 11.03.2011 09:34
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli