Eftirfylgni

Þegar búið er að gera rannsóknir og greina sjúkdóm í fjölskyldu, er gerð áætlun um eftirlit og meðferð og ráðþega vísað til sérfræðings á viðkomandi sviði ef ástæða er til. Einnig er ákveðið hverjum í fjölskyldunni ætti að bjóða erfðarannsókn og hvernig koma á upplýsingum um stökkbreytingar til annarra.

Þó erfðaráðgjöf sé lokið geta ráðþegi og aðrir í fjölskyldunni haft samband við deildina aftur ef spurningar vakna eða eitthvað er óskýrt.

Símar eru 543 5070 og 543 5032.

Rafpóstur esd@landspitali.is

Síðast breytt: 11.03.2011 09:30
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli