Innskráning
Sá sem biður um erfðaráðgjöf, þ.e. ráðþegi, er beðinn um að svara nokkrum spurningum, oftast í síma, fyrir fyrsta viðtal með lækni og erfðaráðgjafa. Upplýsingarnar sem fást eru notaðar til að skilgreina vandamálið og teikna ættartré. Ættartré er mikilvægt til þess að meta hvernig sjúkdómur eða einkenni erfast innan fjölskyldu. Ættartré er einnig notað til að skoða og útskýra hverjir í fjölskyldunni eru líklegir til þess að vera arfberar eða einnig hverjir eru hugsanlega með sjúkdóminn eða í áhættu með að fá einkenni.
Spurt er um fjölda systkina, aldur og þá sjúkdóma eða einkenni sem geta skipt máli varðandi sjúkdóminn. Einnig er spurt um foreldra og þeirra systkini, afa og ömmu og þeirra systkini og afkomendur.
Spurt um meðgöngu, fósturlát og fleira því tengt ef það skiptir máli varðandi erfðaráðgjöfina. Í einstaka tilfellum getur kynþáttur og skyldleiki hjóna skipt máli og því er spurt um það. Ekki þarf allar þessar upplýsingar í hvert sinn en það fer eftir eðli viðkomandi sjúkdóms eða einkenna.
Ef ástæða er til, er beðið um leyfi til að fá að skoða sjúkraskýrslur ákveðinna einstaklinga og þær sóttar ásamt rannsóknarniðurstöðum ef þær eru til.
Gefinn er tími í erfðaráðgjöf þegar búið er að fara yfir þær upplýsingar sem fyrir hendi eru. Ráðþegi fær bréf eða símtal með upplýsingum um viðtal, hvar það verður, tímasetningu, hverjir verða viðstaddir og hverja læknir vill hitta úr fjölskyldunni.