Segavarnir
|
Hjá segavörnum er veitt þjónusta til sjúklinga sem eru í blóðþynningarmeðferð. Hún felst í blóðtöku, mælingu og skömmtun blóðþynningarlyfja. Stjórnun blóðþynningarmeðferðar er viðamikið starf sem mæðir mest á lífeindafræðingum og hjúkrunarfræðingum. Staðsetning Skrifstofur segavarna eru staðsettar á 1. hæð K-byggingar við Hringbraut. Storkurannsóknastofur eru bæði á Hringbraut og í Fossvogi. Á Hringbraut fer blóðsýnataka fer fram á almennri göngudeild 10E. Göngudeildin er staðsett í kjallara E-álmunnar. Einfaldast er að ganga um inngang K-byggingar, sem er glerhýsi gegnt húsi kvennasviðs. |
|
Símanúmer
Ávallt er velkomið að hringja og fá upplýsingar um töfluskammt, INR-gildi og hvenær næst skuli mæla og skammta.
Mælst er til þess að fólk hringi sjálft eftir skammti sínum:
Þeir sem hringja eftir skammti sama dag og þeir fara í blóðprufur á höfuðborgarsvæðinu geta hringt frá kl. 15:00 þann dag. Veittar eru upplýsingar í síma segavarna, 543 5019, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 – 17:00 og á föstudögum frá kl. 08:00 – 16:00.
Starfsmenn segavarna hringja í síðasta lagi daginn eftir skömmtun til þeirra sem ekki hafa fengið upplýsingar um töfluskammt .
Beinir símar hjá hjúkrunarfræðingum Segavarna er 543 5005, 543 5023 og 543 5028.
Tölvupóstfangið er segavarnir@landspitali.is
