Erfða- og sameindalæknisfræði
Erfða- og sameindalæknisfræðideild (ESD) veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu. Hún er eina deildin sinnar tegundir hérlendis og hún annast almenna þjónustu við lækna og sjúkrastofnanir á landinu öllu. ESD annast þjónusturannsóknir til greiningar á erfðasjúkdómum og erfðatengdum vandamálum. Erfðarannsóknir eru ýmist gerðar á rannsóknastofum deildarinnar eða á öðrum sérhæfðum rannsóknastofum sem deildin skiptir við. Deildin veitir einnig erfðaráðgjöf.
Í Þjónustuhandbók rannsókna er að finna helstu upplýsingar um lækningarannsóknir, leiðbeiningar, beiðnablöð og almennar upplýsingar um deildina.
ESD skiptist upp í eftirfarandi starfseiningar:
Lífefnaerfðarannsóknir eru gerðar til að greina erfðavandamál eða fylgja eftir meðferð á sumum arfgengum efnaskiptasjúkdómum. Þessar rannsóknir eru gerðar í samráði við beiðandi lækni. Þessar rannsóknir eru gerðar í samráði við beiðandi lækni. Nýburaskimuner gerð hjá öllum nýfæddum börnum á Íslandi til að leita alvarlegum, meðfæddum sjúkdómum þ.e. vanstarfsemi skjaldkirtils, fenýlketónúríu og ýmsum arfgengum efnaskiptagöllum þar sem greining snemma leiðir til árangursríkari meðferðar. Fósturskimun er valkvæm og byggist á mælingu lífefnavísa í sermi hjá þunguðum konum á fyrsta þriðjungi meðgöngu. Niðurstöður þeirra mælinga eru tengdar saman við upplýsingar um meðgönguna og niðurstöður ómskoðunar. Þessar niðurstöður gefa til kynna hvort líkur á tilteknum litningagöllum eru auknar.
Klínísk erfðafræði - erfðaráðgjöf sinnir greiningu erfðavandamála, almennri erfðaráðgjöf, erfðaráðgjöf á meðgöngu ásamt erfðaráðgjöf krabbameina. Einingin útbýr fræðsluefni í erfðafræði fyrir almenning í samvinnu við ýmsa aðila.
Litningarannsóknir eru gerðar þegar grunur er um að vanskapnaður, þroskahömlun eða önnur frávik stafi af litningagalla. Ýmsar aðrar ástæður geta leitt til litningarannsókna.
Sameindaerfðarannsóknir felast í leit að eða greiningu á stökkbreytingum í erfðaefni hjá einstaklingum sem grunaðir eru um erfðasjúkdóma. Niðurstöður sýna hvort stökkbreytingar séu til staðar eða ekki. Í sumum tilvikum er sameindaerfðarannsóknir notaðar til að meta áhættu einstaklings eða ættingja hans á erfðasjúkdómi.
ESD tengist lífefna- sameindalíffræðasviði læknadeildar H.Í. Auk erfðaþjónustu er ESD vettvangur kennslu ýmissa nemenda í heilbrigðis- og lífvísindum. Á deildinni eru stundaðar margvíslegar vísindarannsóknir í samstarfi við innlenda og erlenda vísindamenn.
Starfsemi ESD fer fram á virkum dögum á dagvinnutíma kl. 8:00 - 16:00.
Gæsluvakt er á litningarannsóknadeild á frídögum (sími 824-5259).
Sýni og sýnamóttaka
Leiðbeiningar um sýni eru á rannsóknabeiðnum einstakra eininga. Sýnamóttaka fyrir litningarannsóknir er í húsi 7 við Barónsstíg á dagvinnutíma en fyrir aðrar tegundir sýna í móttökunni á 2. hæð í K-byggingu við Hringbraut. Hún er opin allan sólarhringinn. Vaktmenn Landspítala Hringbraut (543-1800) taka einnig við sýnum.
Móttaka fyrir blóðsýnatökur eru á vegum klínísku lífefnafræðideildarinnar bæði við Hringbraut og í Fossvogi.
Beiðnir
- Erfðarannsókn (DNA-rannsóknir)
- Fósturskimun
- Litningarannsókn, blóð, beinmergur, húð
- Litningarannsókn, legvatn, fylgjuvefur
- Litningarannsókn, blóð, beinmergur, húð, annað
- Nýburaskimun
Upplýsingasímar:
- Almennar upplýsingar 543 5070
- Fósturskimun 543 5031
- Litningarannsóknir 543 8062 vaktsími um helgar: 824 5259
- Nýburaskimun, lífefnaerfðarannsóknir 543 5039
- Sameindaerfðarannsóknir (DNA) 824 5981
Klínísk erfðafræði og erfðaráðgjöf:
- Innskráning 543 5070
- Ráðgjöf 543 5032
- Almenn móttaka sýna í K-byggingu 543 5000
- Upplýsinganetfang ESD er esd@landspitali.is
Póstföng (staðsetning)
Erfða- og sameindalæknisfræðideild
K-bygging
Landspítali, Hringbraut
101 Reykjavík
Litningarannsóknardeild
v. Barónsstíg, hús 7
Landspítali, Hringbraut
101 Reykjavík
Sameindaerfðarannsóknir
Læknagarði, 5.hæð
Vatnsmýrarvegi 16
101 Reykjavík
