Blóðmeinafræðideild
|
|
Blóðmeinafræðideild er vettvangur þjónustu- og vísindarannsókna á blóðfrumum, beinmerg, líkamsvessum og blóðstorknun. Auk þess tilheyra deildinni blæðaramiðstöð LSH, segavarnir LSH og sérfræðileg ráðgjöf vegna storkumeina. |
Blóðmeinafræðideild er vettvangur þjónustu- og vísindarannsókna á blóðfrumum, beinmerg, líkamsvessum og blóðstorknun. Auk þess tilheyra deildinni blæðaramiðstöð LSH, segavarnir LSH og sérfræðileg ráðgjöf vegna storkumeina.
Starfsemi blóðmeinafræðideildar byggir á greiningu blóð-, beinmergs- og líkamsvökvasýna sem berast frá deildum sjúkrahússins og öðrum stofnunum í heilbrigðisþjónustu. Deildin mótast af því að Landspítalinn er aðalkennslustofnun lækna og lífeindafræðinga. Innan deildarinnar starfa sérfræðingar í blóðsjúkdómum (blóðmeinafræðingar), lífeindafræðingar, hjúkrunarfræðingar og líffræðingar ásamt skrifstofufólki. Á undanförnum árum hefur vísindastarfsemi á deildinni aukist en þar fara m.a. fram rannsóknir á blæðingum og blæðingahneigð auk rannsókna á krabbameinum og stofnfrumum. Á blæðaramiðstöð og hjá segavörnum fer fram eftirlit og meðferð sjúklinga með blæðinga- eða segasjúkdóma, þ.m.t. segavarnarmeðferð.
Upplýsingar um sýnatökur og rannsóknir má finna í Þjónustuhandbók rannsóknarsviðs
Staðsetning og símanúmer
Blóðmeinafræðideild er staðsett bæði í Fossvogi og við Hringbraut.
Rannsóknastofur í Fossvogi eru til húsa á 1. hæð í E-álmu (E-1). Blóðtökueining er á sama stað.
Upplýsingar um svör og sýnamóttaka í Fossvogi:Sími 543 5600.
Fax 543 5625
Rannsóknastofur við Hringbraut eru til húsa á 1. og 2. hæð í K-byggingu. Blóðtökueining er á göngudeild í kjallara E-álmu (10-E).
Upplýsingar um svör og sýnamóttaka á Hringbraut:
Sími 543 5000
Fax 543 5539
Afgreiðslutímar og þjónusta
Dagvinnutími er frá kl. 08:00 - 16:00.
Á rannsóknastofum blóðmeinafræðideildar eru lífeindafræðingar á vakt allan sólarhringinn. Vaktmenn Landspítala taka við sýnum og koma þeim á rannsóknastofur.
Blóðtaka Hringbraut: Blóð er tekið af ambulant sjúklingum virka daga frá kl. 08:00 - 15:00 (til kl. 16:00 fyrir deildir spítalans) - Nánar hér.
Blóðtaka Fossvogur: Blóð er tekið af ambulant sjúklingum virka daga frá kl. 08:00 - 15:45 - Nánar hér.
Á blóðmeinafræðideild starfa sérfræðingar í blóðmeinafræði sem sinna sjúklingum með blæðinga- og storkuvandamál. Tímabókanir hjá sérfræðing á göngudeild fara fram eftir tilvísun frá heimilislækni eða öðrum sérfræðingi í s. 543 5010.
Læknar blóðmeinafræðideildar og hjúkrunarfræðingar blæðaramiðstöðvar og segavarna taka á móti sjúklingum á dagdeild blóð- og krabbameinslækninga, 11BC á Hringbraut. Sími dagdeildar er 543 6100.
Utan dagvinnutíma skiptast læknar blóðmeinafræðideildar á að sinna útköllum vegna blæðara, blæðinga- og storknunarvandamála og blóðmeinafræðilegra rannsókna.
Yfirlæknir deildarinnar er Páll Torfi Önundarson.
Alternative content
Blóðmeinafræðideild er vettvangur þjónustu- og vísindarannsókna á blóðfrumum, beinmerg, líkamsvessum og blóðstorknun. Auk þess tilheyra deildinni blæðaramiðstöð LSH, segavarnir LSH og sérfræðileg ráðgjöf vegna storkumeina.
Starfsemi blóðmeinafræðideildar byggir á greiningu blóð-, beinmergs- og líkamsvökvasýna sem berast frá deildum sjúkrahússins og öðrum stofnunum í heilbrigðisþjónustu. Deildin mótast af því að Landspítalinn er aðalkennslustofnun lækna og lífeindafræðinga. Innan deildarinnar starfa sérfræðingar í blóðsjúkdómum (blóðmeinafræðingar), lífeindafræðingar, hjúkrunarfræðingar og líffræðingar ásamt skrifstofufólki. Á undanförnum árum hefur vísindastarfsemi á deildinni aukist en þar fara m.a. fram rannsóknir á blæðingum og blæðingahneigð auk rannsókna á krabbameinum og stofnfrumum. Á blæðaramiðstöð og hjá segavörnum fer fram eftirlit og meðferð sjúklinga með blæðinga- eða segasjúkdóma, þ.m.t. segavarnarmeðferð.
Upplýsingar um sýnatökur og rannsóknir má finna í Þjónustuhandbók rannsóknarsviðs
Staðsetning og símanúmer
Blóðmeinafræðideild er staðsett bæði í Fossvogi og við Hringbraut.
Rannsóknastofur í Fossvogi eru til húsa á 1. hæð í E-álmu (E-1). Blóðtökueining er á sama stað.
Upplýsingar um svör og sýnamóttaka í Fossvogi:Sími 543 5600.
Fax 543 5625
Rannsóknastofur við Hringbraut eru til húsa á 1. og 2. hæð í K-byggingu. Blóðtökueining er á göngudeild í kjallara E-álmu (10-E).
Upplýsingar um svör og sýnamóttaka á Hringbraut:
Sími 543 5000
Fax 543 5539
Afgreiðslutímar og þjónusta
Dagvinnutími er frá kl. 08:00 - 16:00.
Á rannsóknastofum blóðmeinafræðideildar eru lífeindafræðingar á vakt allan sólarhringinn. Vaktmenn Landspítala taka við sýnum og koma þeim á rannsóknastofur.
Blóðtökur Hringbraut: Blóð er tekið af ambulant sjúklingum virka daga frá kl. 08:00 - 15:00 (til kl. 16:00 fyrir deildir spítalans).
Blóðtökur Fossvogur: Blóð er tekið af ambulant sjúklingum virka daga frá kl. 08:00 - 15:45.