Blæðaramiðstöð
Blæðara- og storkumeinamiðstöð var stofnuð innan blóðmeinafræðideildar Landspítalans árið 2001. Hún er sú eina sinnar tegundar hérlendis og þjónar landinu öllu með rannsóknum, ráðgjöf og meðhöndlun á blæðinga- og ofstorknunarsjúkdómum. Einnig er boðið upp á erfðafræðilega greiningu og erfðaráðgjöf í samvinnu við erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítalans.
Starfsemi blæðara- og storkumeinamiðstöðvar skiptist í tvo meginþætti. Annars vegar fer fram greining og meðhöndlun blæðingasjúkdóma og eftirlit sjúklinga með blæðingasjúkdóma, blæðaramiðstöð, og hins vegar greining og meðhöndlun sjúkdóma og vandamála sem tengjast blóðstorku- og segamyndun, segavarnir.
Símanúmer og fax
| Hjúkrunarfræðingur blæðaramiðstöðvar | 824 5414 |
| Vaktsími lækna | 543 2894 / 824 5539 |
| Blóðmeinafræðideild, tímabókanir á göngudeild | 543 5010 |
| Göngudeild Barnaspítala Hringsins, afgreiðsla | 543 3700 |
| Blæðaramiðstöð, fax |
543 5016 |
Tölvupóstur blæðaramiðstöðvar: storkumein@landspitali.is
Staðsetning
Skrifstofur lækna og hjúkrunarfræðinga eru á 1. hæð K-byggingar Landspítala við Hringbraut. Rannsóknarstofa er staðsett á 2. hæð í sömu byggingu.
Móttaka sjúklinga fer fram á göngudeild 11BC sem staðsett er á 1. hæð Landspítala við Hringbraut. Gengið er inn um aðalinngang Landspítalans, Kringluna.
Börnum að 18 ára aldri er sinnt á Barnaspítala Hringsins við Hringbraut.
