Um lyflækningasvið
Lyflækningasvið er stærsta svið Landspítala og viðfangsefni þess lúta að mörgum algengustu og alvarlegustu heilsufarsvandamálum landsmanna og oft er um að ræða þjónustu sem hvergi er veitt annars staðar á landinu. Sérstök lyflækningadeild hefur verið starfandi á Landspítala allt frá stofnun spítalans 1930. Á lyflækningasviði eru tæplega 1.400 starfsmenn sem tilheyra fjölmörgum starfsstéttum. Mikil áhersla er á teymisvinnu sérfræðinga og starfsstétta.
Vilhelmína Haraldsdóttir er framkvæmdastjóri lyflækningasviðs.
Auk þess að sinna sjúklingum með almenn lyflæknisfræðileg og fjölkerfa vandamál er veitt sérhæfð þjónusta í eftirtöldum greinum:
Blóðsjúkdómar
Endurhæfing
Gigtsjúkdómar
Hjartasjúkdómar
Húð- og kynsjúkdómar
Innkirtla- og efnaskiptasjúkdómar
Krabbameinslækningar, jafnt lyflækningar sem geislameðferð
Lungnasjúkdómar
Meltingarsjúkdómar
Nýrnasjúkdómar
Ofnæmissjúkdómar
Smitsjúkdómar
Taugasjúkdómar
Öldrunarsjúkdómar
Starfsemi lyflækningasviðs er á mörgum stöðum þ.e. í Fossvogi, við Hringbraut, á Landakoti, á Grensási og í Kópavogi.
Bráðastarfsemin fer að mestu fram í Fossvogi og á Hringbraut. Þjónusta er veitt á legudeildum, dag- og göngudeildum, bráðamóttökum og sérhæfðum rannsóknar- og meðferðarstofum. Þá er veitt sérfræðiráðgjöf á öllum deildum spítalans eftir þörfum.
Öldrunarþjónustan er að mestu staðsett á Landakoti en einnig á bráðaöldrunardeild B4 í Fossvogi. Öldrunarlæknar veita ráðgjöf um meðhöndlun aldraðra á flestum deildum spítalans og þjónusta nokkur hjúkrunarheimili borgarinnar samkvæmt sérstökum samningum þar að lútandi.
Endurhæfingarþjónusta er mikilvægur hluti af sviðinu og er hún aðallega staðsett á Grensási auk þess sem þjálfun og ráðgjöf er veitt á öllum deildum spítalans. Sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfarar og talmeinafræðingar Landspítala starfa á sviðinu en þeir veita þjónustu eftir þörf á öllum klínískum sviðum spítalans.
Líknardeild Landspítala er staðsett í Kópavogi. Heimahlynning starfar í tengslum við líknarráðgjafateymi og veitir sjúklingum á líknandi meðferð sérhæfða þjónustu sem miðar að því að gera þeim kleift að vera sem lengst heima.
Á árinu 2011 voru um 10 þúsund innlagnir á lyflækningasviði en legudagar voru tæplega 110 þúsund. Vaxandi hluti starfseminnar fer fram á dag- og göngudeildum. Á árinu 2011 voru komur á dagdeildir rúmlega 49 þúsund og komur á göngudeildir rúmlega 110 þúsund.
Starfsemi lyflækningasviðs felst fyrst og fremst í þjónustu við sjúklinga en menntun heilbrigðisstétta og vísindarannsóknir eru einnig afar mikilvægir þættir í starfsemi háskólasjúkrahúss. Margar heilbrigðisstéttir sækja hluta af menntun sinni á lyflæknissviði en nemar í hjúkrunarfræði og læknisfræði eru þar langfjölmennastir. Sviðið er einnig vettvangur rannsóknartengds framhaldsnáms til meistara- eða doktorsprófs og framhaldsnáms sem miðar að sérhæfingu og starfsréttindum bæði í hjúkrunarfræði og læknisfræði, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talmeinafræði.
Skrifstofa lyflækningasviðs er á E-7 í Fossvogi
Skrifstofustjóri er María Guðmundsdóttir, s. 5436431, margud@landspitali.is
