A7 smitsjúkdómar og alm. lyflækningadeild

Aðsetur: 7. hæð A álma, Fossvogi

Símanúmer deildar: 543 6770

Vaktstjóri hjúkrunar: 825 5039

Símatímar aðstandenda kl. 11:00-12:00 og 18:30-19:30 alla daga vikunnar.

Heimsóknartímar eru kl. 15:00-16:00 og 19:00-20:00.


Meginstarf deildarinnar er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráða smitsjúkdóma. Flestir sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðamóttöku eða gæsludeild. Á deildinni eru sérútbúnar einangrunarstofur ætlaðar sjúklingum sem þurfa einangrun vegna smitsjúkdóma eða skerts ónæmiskerfis.

Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita upplýsingar varðandi sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.

Landspítali er kennsluspítali og nemendur í heilbrigðisfræðum og tengdum greinum stunda hluta af námi sínum á spítalanum. Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga og eru alltaf á ábyrgð og undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.

Göngudeild smitsjúkdóma er starfrækt á G3.

Stefanía Arnardóttir s. 543 6774, netfang: stefarn@landspitali.is

Már Kristjánsson netfang: markrist@landspitali.is