Speglun
Staðsetning: Hringbraut 11D og Fossvogi A3
Afgreiðslusími 543 6150
Opið alla virka daga kl. 8:00-16:00.
Deildin tilheyrir lyflækningasviði og annast bæði meltingafæraspeglanir og berkjuspeglanir.
Meginþjónusta meltingarlækninga er á 11D Hringbraut og meginþjónusta berkjuspeglana á A3 Fossvogi.
Á deildinni starfa
- sérfræðingar í meltingarlækningum
- skurðlæknar sem fást við skurðaðgerðir á meltingarvegi
- barnalæknir (sérfræðingur í meltingarlækningum)
- sérfræðingar í lungnalækningum
- hjúkrunarfræðingar
- ritarar
| Ýmis konar speglanir framkvæmdar t.d. - magaspeglanir (á vélinda-, maga-, og skeifugörn) - ristilspeglanir (langar og stuttar) - gallvegaspeglanir (ERCP) - holsjárómanir (e. endoskooic ultrasound) - myndhylkisrannsóknir, til rannsóknar á smágirni - berkjuspeglanir |
Aðgerðir framkvæmdar í gegnum speglunartækin. t.d. - sýnataka til sjúkdómsgreininga - stöðvun blæðinga á ýmsum stöðum í meltingarvegi - fjarlægja sepa og/eða æxli og einnig aðskotahluti. - víkka þrengingar á ýmsum stöðum í meltingarvegi - stent ísetningar (vélinda, ristill, gallgöng) - PEG (Percutan Endoscopic Gastrostomia) - geislun á æxli |
Upplýsingar um hinar ýmsu speglanir má finna í bæklingum (pdf) hér fyrir neðan:
Berkjuspeglun
Gallvegarannsókn
Magaraufun í gegnum húð með hjálp holsjár
Magaspeglun
Magastóma hjá börnum
Ristilspeglun
Stutt ristilspeglun
|
meltingarlækninga Einar Stefán Björnsson |
Hjúkrunardeildarstjóri Herdís Ástráðsdóttir |
meltingarfæraspeglunar Ásgeir Theódórs |
Umsjónarlæknir lungnaspeglunar Gunnar Guðmundsson |
