Göngudeild sykursjúkra
Þjónustutími:
8:00-16:00 alla virka daga.
Sími: 543 6331
Timapantanir: 08:00 og 14:00 alla virka daga.
Göngudeild sykursjúkra er staðsett á göngudeild innkirtla- og efnaskipta G3 sem tilheyrir göngudeild lyflækninga í Fossvogi. Göngudeild sykursjúkra sinnir stórum hluta sjúklinga með sykursýki. Hlutverk hennar er að greina sykursýki, ákvarða meðferð og veita hinum sykursjúku alhliða fræðslu um sjúkdóminn með áherslu á sjálfseflingu og eftirfylgni og stuðla þannig að sem bestri líðan, heilsu og horfum þeirra, ekki síst með því að hindra fylgikvilla sjúkdómsins.
Stjórnendur:
Ástráður B Hreiðarsson yfirlæknir
Guðrún Magney Halldórsdóttir deildarstjóri
