Líknardeild Kópavogi
Kópavogsbraut 5-7
200 Kópavogur
Staðsetning deildarinnar á korti
Minningarkort líknardeildarinnar
Deildarstjóri er Dóra Halldórsdóttir
Yfirlæknir er Valgerður Sigurðardóttir
Sími líknardeildar er 543 6602 og 543 6605
Líknardeildin í Kópavogi er hugsuð fyrir tímabundna innlögn fólks með ólæknandi, langt genginn sjúkdóm og skertar lífslíkur þar sem læknanlegri meðferð hefur verið hætt og öll meðferð (krabbameinsmeðferð eða önnur) miðast að því að fyrirbyggja eða lina einkenni og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri þjáningu. Flestir sjúklinganna eru með krabbamein. Markmiðið er að bæta lífsgæði sjúklinganna og fjölskyldna þeirra.
Líknardeildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins. Þar er gott útsýni til sjávar og góðar gönguleiðir í nágrenninu. Deildin hóf starfsemi í apríl 1999. Henni var komið á fót með sameiginlegu átaki LSH og Oddfellowreglunnar á Íslandi sem ákvað í tilefni af 100 ára afmæli reglunnar að veita fé til uppbyggingar líknardeildar í Kópavogi. Í húsnæði samhliða legudeildinni er dag- og fimm daga deild sem og göngudeild sem opnaðar voru í september 2007, einnig með stuðningi Oddfellowreglunnar.
- Á líknardeildinni er heimilislegt umhverfi og reynt að mæta þörfum sjúklings og fjölskyldu hans eins og framast er unnt. Veitt er læknis- og hjúkrunarþjónusta, endurhæfing og sálgæsla sem og félagsráðgjöf og annar stuðningur ef þörf er á. Deildin skiptist í 8 rúma legudeild, fimm daga deild, dagdeild og göngudeild. Í sama húsi hefur Heimahlynning aðsetur.
- Á deildinni eru 6 einbýli og 2 tvíbýli. Snyrtingar eru milli herbergja. Hægt er að geyma verðmæti í læstum skáp hjá starfsfólki en eindregið er mælst til þess að vera ekki með mikil verðmæti á stofum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölskylduhjúkrun þar sem unnið er markvisst að því að veita heildræna einstaklingsmiðaða þjónustu til skjólstæðinga og fjölskyldna þeirra og starfa hinar ýmsu starfsstéttir náið saman.
Helstu ástæður innlagna á líknardeild:
Áhersla er á teymisvinnu starfsfólks og lögð áhersla á góð samskipti og samvinnu við sjúklinginn og fjölskyldu hans. |
Matmálstímar
Maturinn á líknardeildinni kemur frá eldhúsi LSH. Hádegismatur er kl. 12:00-13:00, kvöldmatur kl. 18:00-19:00. Þess á milli er kaffitími um kl. 15:00 og kvöldhressing um kl. 20:00. Tími morgunmatar er sveigjanlegur. Aðstandendum er velkomið að koma með mat fyrir sjúkling. Möguleiki er að geyma merktan mat í ísskáp í borðstofu. Hægt er að panta sérfæði s.s. grænmetisfæði.
Heimsóknargestir
Almennur heimsóknartími á líknardeildinni er frá kl. 15:00-16:30 en er sveigjanlegur fyrir nánustu aðstandendur og vini. Taka þarf tillit til þess að á morgnana fá flestir sjúklingar aðstoð við sjálfsumönnun/aðhlynningu, matartími er frá kl. 11:30-12:30, kvöldmatur 17:30-18:30 og margir sjúklingar vilja hvíla sig eftir matinn. Húsunum er læst á kvöldin en hægt er að hringja í síma 543-6602. Reynt er að hafa ekki mikinn gestagang eftir kl. 21.
Mælst er til þess að fjöldi heimsóknargesta sé innan skynsamlegra marka hjá hverjum og einum og mikilvægt er að gefa nánustu aðstandendum rými með sjúklingnum. Börn eru að sjálfsögðu velkomin en hafa þarf í huga að þau valdi ekki truflun á deildinni.
Öll herbergi eru einbýli þannig að aðstandendur geta verið hjá sjúklingi yfir daginn ef þörf er á og möguleiki er á að gista yfir nótt á bedda eða hægindastól á stofu sjúklings. Nánustu aðstandendur geta fengið keyptan mat úr eldhúsi Landspítala en panta þarf hádegismat fyrir kl. 10:00 að morgni og kvöldmat fyrir kl. 13:30. Starfsfólk í eldhúsi og ritari sér um pöntun og tekur á móti greiðslu.
Sjúklingar hafa oft lítið úthald og þurfa heimsóknargestir því að haga lengd heimsóknar með tilliti til þess og stoppa stutt. Algengt er að sjúklingar þoli illa sterka lykt t.d. af lyktarsterkum blómum (liljum), reykingum, ilmvatni eða rakspíra og er mikilvægt fyrir heimsóknargesti að huga að því.
Mælst er til þess að aðstandendur hafi GSM síma sína stillta á hljóðlátt (silence) og tali ekki í síma á gangi og í setustofu deildarinnar. Hægt er að fara í fundarherbergi, bókarskot undir stiga eða út.
Taka þarf tillit til þess að sjúklingar sem eru mikið veikir óska oft eingöngu eftir heimsóknum frá sínum nánustu fjölskyldumeðlimum. Þetta kemur heimsóknargestum stundum á óvart en ætti ekki að taka persónulega. Óskir sjúklings þarf að virða.
Þegar um mikið veika sjúklinga er að ræða verða samræður oft erfiðari en þýðir þó ekki að heimsóknargestir ættu að hætta að koma. Nærvera er flestum mikilvæg og geta sjúklingar notið nærveru gesta, fundist gott að heyra í þeim þó svo að sjúklingur eigi erfitt með að taka þátt í samræðum. Varast ber þó að þreyta sjúkling. Ef heimsóknargestir eru í vafa hvort þeir eigi að heimsækja sjúkling ættu þeir að vera í sambandi við fjölskyldu hans eða starfsfólk líknardeildar í síma 543-6602
eða 543-6605.
| Starfið á líknardeildinni í Kópavogi, fyrstu sérhæfðu líknardeildinni á Íslandi, grundvallast á skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) frá 2002 um líknarmeðferð:
Líknarmeðferð er meðferð sem miðar að því að bæta lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra sem eru með lífshættulega sjúkdóma og felst meðferðin í að fyrirbyggja og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri þjáningu. Líknarmeðferð á við snemma á veikindatímabilinu samhliða annarri meðferð (krabbameinslyfjum og geislum) sem notuð er til að lina einkenni en jafnframt að lengja líf. |
