Skráning á ráðstefnuna fjölskyldan og barnið
Þverfagleg ráðstefna á vegum kvenna- og barnasviðs Landspítala með yfirskriftinni "Fjölskyldan og barnið" þar sem fjallað verður frá ýmsum sjónarhornum um heilbrigði, sjúkdóma, meðferðir og umönnun sem snerta barneignarferlið, heilbrigði kvenna, barnið og fjölskylduna.
Hvenær: 12. október 2012
Staðsetning: Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu.
Þátttökugjald er 9.000 kr. Léttur hádegisverður og kaffi innifalið í verðinu.
